
Vilt þú að atkvæði kjósenda vegi jafnt?
Nú er það svo að sá sem flyst búferlum í gegnum Hvalfjarðargöngin tvíeflir við það atkvæðastyrk sinn; segja má að hann fái tvö atkvæði í stað eins áður. Misvægi af þessu tagi er afleiðing búsetuflutninga frá dreifbýli til þéttbýlis en ekki endilega meðvitað pólitískt markmið. Með fyrri stjórnarskrárbreytingum hefur af og til verið tekið á vandanum. Misvæginu hefur þó aldrei verið útrýmt til fulls og jafnan hefur farið aftur í fyrra horf. Stjórnlagaráð leggur til að á þessu verði tekið með skýrum og óyggjandi hætti, enda stendur skorinort í 2. mgr. í 39. gr. í frumvarpi ráðsins: „Atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vega jafnt."
Minna virðist deilt um markmiðið, jöfnun kosningarréttar, en um leiðirnar að því markmiði. Að mati margra er einfaldasta og um leið skynsamasta leiðin sú að hafa landið eitt kjördæmi. Um leið verði þingmenn fulltrúar allra kjósenda hvar sem þeir búa á landinu. Landið sem eitt kjördæmi var skýr krafa þjóðfundarins 2010 að mati stjórnlaganefndar, þótt önnur sjónarmið hafi vissulega komið fram.
Niðurstaða stjórnlagaráðs varð sú að leggja til samþættingu kjördæmakosninga og landskjörs. Því er haldið opnu hvort landið sé eitt kjördæmi eða fleiri. En sé því skipt upp skal vera unnt að bjóða fram landslista ásamt kjördæmalistum. Jafnframt skal frambjóðendum vera heimilt að bjóða sig fram samtímis á einum lista af hvoru taginu hjá sama flokki. Þannig geta frambjóðendur og kjósendur sjálfir ráðið því hvort þeir vilja horfa til landsins alls eða til kjördæmissjónarmiða, eða til hvors tveggja.
Spurningin í þjóðaratkvæðagreiðslunni snýst þó ekki um útfærsluna heldur um sjálft grunnmarkmiðið, sama vægi atkvæða alls staðar á landinu. Fjöllum um rökin og gagnrýnina.
Rök fyrir JÁ við spurningunniRökin fyrir jöfnu vægi atkvæða virðast svo auðsæ að það ætti vart að þurfa að nefna þau. Hér eru nokkur:
Allir eiga að vera jafnir fyrir lögum og njóta sömu mannréttinda. Lýðræðið getur ekki verið stigskipt. Það er ekki hægt að tala um hálf mannréttindi, hvorki í kosningarrétti né í öðrum lýðréttindum.
Fram kom á þjóðfundinum 2010 skýr krafa um að ójöfnuðinum verði með öllu útrýmt.
Ísland er fámennt, kjósendur gætu rúmast í einu kjördæmi víða erlendis. Hvers vegna að draga íbúana í dilka og gera þeim lýðræðislega mishátt undir höfði? Hlúum frekar hvert að öðru hvar á landinu sem er.
Misvægi atkvæða leiðir óhjákvæmilega til klúðurslegs kosningakerfis. Til þess að tryggja jöfnuð milli flokka er búið til flókið jöfnunarsætakerfi til þess að vega upp á móti búsetumisvæginu. Með jöfnu atkvæðavægi geta úthlutunarreglur orðið einfaldari.
Rök fyrir NEI við spurningunni
Eftirfarandi hefur heyrst til stuðnings neii, þ.e.a.s. því að viðhalda atkvæðamisvæginu:
Aðstaða íbúanna er sögð misjöfn m.a. vegna búsetu. Þeir sem eigi í vök að verjast þurfi meira atkvæðavægi og eigi það skilið. En hvað með þá sem fara halloka af öðrum sökum en búsetu, svo sem fatlaðir? Eiga þeir þá ekki kröfu á auknu atkvæðavægi? Og öfugt, ættu hinir ríku að hafa skertan atkvæðisrétt?
Sagt er að þeir sem búa suðvestanlands eigi beinni og auðveldari aðgang að stjórnvöldum en hinir. Er það svo? Hve oft kemst íbúi í útjöðrum höfuðborgarsvæðisins í tæri við þingmenn sína eða aðra valdsmenn? Skiptir landfræðileg fjarlægð sköpum á dögum netsamskipta af öllu tagi?
Bent er á að sums staðar erlendis, t.d. í Noregi, sé líka atkvæðavægi mismunandi eftir búsetu. Það er rétt en er líka umdeilt þar. Jafnframt verður á það að líta að misvægið í Noregi hefur minni áhrif á skipan Stórþingsins norska, en raunin er við kosningar til Alþingis Íslendinga.
ÁlyktunEkki verður varið að mismuna kjósendum eftir búsetu. Engu að síður þarf að stuðla að því að raddir allra heyrist á þingi; dreifbýlisfólks sem og þéttbýlisbúa, ungra sem og aldraðra. Kosningafyrirkomulag það, sem stjórnlagaráð leggur til með blandi af kjördæmakjöri og landskjöri, er vel til þessa fallið. Persónukjör þjónar sama tilgangi.
Pistilhöfundur telur að valið hljóti að vera einhlítt og mælir því með jáyrði við spurningunni um jafnt vægi atkvæða.
Skoðun

Fjögurra daga vinnuvika – nýr veruleiki?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Ráðherra gengur fram án laga
Svanur Guðmundsson skrifar

Hagkvæmur kostur utan friðlands
Jóna Bjarnadóttir skrifar

Gagnsæi og inntak
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Sumargjöf
Þórunn Sigurðardóttir skrifar

Hannað fyrir miklu stærri markaði
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Grafarvogur framtíðar verður til
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Málþófið um veiðigjöldin vekur miskunnsama Samverja
Sigurjón Þórðarson skrifar

Menntastefna 2030
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Ágætu fyrrum samstarfsaðilar á Þjóðminjasafni Íslands
Uggi Jónsson skrifar

Ferðamannaþorpin - Náttúruvá
Þóra B. Hafsteinsdóttir skrifar

Vonarsvæði fyrir framtíðina – ábyrgð stjórnvalda kallar á verndun
Huld Hafliðadóttir,Heimir Harðarson skrifar

Laxaharmleikur
Jóhannes Sturlaugsson skrifar

Lýðræðið í skötulíki!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Stærðfræðikennari sem kann ekki að reikna? (Og getur ekki lært það!)
Brynjólfur Þorvarðsson skrifar

Íslendingar greiða sama hlutfall útgjalda í mat og Norðurlöndin
Margrét Gísladóttir skrifar

Til varnar jafnlaunavottun
Magnea Marinósdóttir skrifar

Heimaþjónusta og velferðartækni: Lykillinn að sjálfbæru heilbrigðiskerfi
Auður Guðmundsdóttir skrifar

Barnaræninginn Pútín
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Um þjóð og ríki
Gauti Kristmannsson skrifar

Málfrelsi og mörk þess á vettvangi lýðræðisins
Helga Vala Helgadóttir skrifar

Sjókvíaeldi á Íslandi fjarstýrt með gervigreind frá Noregi
Ingólfur Ásgeirsson skrifar

Hvers vegna skipta hagsmunir verslanakeðja meira máli en öryggi barna í Ásahverfi Reykjanesbæ?
Ólafur Ívar Jónsson skrifar

Kjarnorkuákvæðið: Neyðarhemill en ekki léttvægt leikfang popúlista
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Stjórnarandstaðan er vannýtt auðlind
Jón Daníelsson skrifar

Ef Veðurstofan spáði vitlausu veðri í 40 ár, væri það bara í lagi?
Björn Ólafsson skrifar

Hægri sósíalismi
Jón Ingi Hákonarson skrifar

5 ára vegferð að skóla framtíðarinnar – eða ekki!
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Ójafnvægi í jöfnunarkerfinu
Anna Sigríður Guðnadóttir,Halla Karen Kristjánsdóttir,Lovísa Jónsdóttir skrifar