Heillaðist af alíslensku hráefninu 12. nóvember 2012 22:00 Sigríður Heimisdóttir hefur hannað fylgihluta, fata - og heimilislínu úr mokkaskinni fyrir Varma. ?
Hráefnið kveikti í mér og þetta var ekkert smá skemmtilegt verkefni,? segir iðnhönnuðurinn Sigríður Heimisdóttir sem hefur hannað fylgihluta-, fata- og heimilislínu úr mokkaskinni fyrir íslenska fyrirtækið Varma. Í línunni er að finna allt frá hinum klassísku mokkalúffum sem margir Íslendingar þekkja, til eldhúskolla með mokkasetu og vesta. ?Mokka er hráefni sem er partur af arfleifð okkar. Það er vanmetið efni en það er oft svoleiðis með íslensk hráefni, eins og ullina og fiskinn sem við erum gjörn á að tala niður til,? segir Sigríður og fullyrðir að hönnunarferlið hafi verið mjög skemmtilegt. ?Ég vinn aðallega fyrir erlend fyrirtæki svo það var mjög áhugavert fyrir mig að fylgjast með ferlinu sem fer alfarið fram hér á landi, frá upphafi til enda.? Sigríður er þekkt fyrir hönnun sína á heimilis- og húsbúnaðarvörum, meðal annars fyrir Ikea, en þetta var í fyrsta sinn sem hún tókst á við fatahönnun. ?Ég ákvað að fá til liðs við mig fagfólk enda ekki mitt sérsvið. Það er því Helga Lúðvíksdóttir klæðskeri sem er konan á bak við sniðin.? Aðspurð hver sé hennar uppáhaldshlutur úr línunni á Sigríður erfitt með að svara. ?Það er mjög erfitt að gera upp á milli en í augnablikinu er ég í vestinu og það er svo hlýtt að það er eins og að vera í svefnpoka. Þannig að núna er það uppáhaldi.? - áp
Mest lesið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Best að geta elt draumana saman Lífið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Lífið samstarf Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Fleiri fréttir Björk glæsileg í indverskri hönnun Segir nei takk við jakkafatapésana Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Sjá meira