Alltaf best þegar lítið er að gera 26. nóvember 2012 00:01 Hjörtur Freyr Vigfússon er markaðsstjóri Securitas. Hann segir þjónustu fyrirtækisins hafa vaxið og víkkað út í áranna rás til að mæta mismunandi þörfum þjóðfélagsins.mynd/anton
Það er gott að vita af vökulum augum og traustri stoð þegar eitthvað bjátar á í lífinu. Snarir snúningar starfsfólks á stjórnstöð Securitas tryggja tafarlausa hjálp á breiðum grunni, hvort sem það er við eldamennskuna heima, í sumarhúsinu eða hjá þeim sem komnir eru á efri ár og búa einir. Sumum þykir heldur kaldranalegt að heyra mig kveðja strákana á bílaverkstæðinu með orðunum: „Ég vona að ég sjái ykkur ekki aftur á næstunni!“ en segja má að hugmyndafræði Securitas byggi á sömu varúðarráðstöfun. Það er að viðskiptavinum okkar líður eðlilega best þegar þeir þurfa ekki á Securitas að halda en eru rórri vitandi að við séum alltaf á vaktinni,“ segir Hjörtur Vigfússon, markaðsstjóri Securitas. Hjörtur heldur áfram: „Vitaskuld er mikilvægast að veitt aðstoð sé með besta mögulega móti þegar hennar er þörf. Við reynum jafnt og þétt að auka þjónustuna og bætum við þáttum sem við sjáum að viðskiptavinir okkar kunna að meta,“ segir Hjörtur. „Hér áður snerist starfsemi Securitas að mestu um forvarnir gegn innbrotum en í seinni tíð hafi ótal fleiri þættir farið að skipta máli.“ Æ, ó, lambafille á pönnunni! „Eldvarnir á heimilum verða sífellt mikilvægari,“ segir Hjörtur og útskýrir ástæðuna. „Í dag er almenningur betur upplýstur um hættur í umgengni við eld á sama tíma og æ fleiri raftæki eru inni á heimilunum sem bilað geta og valdið eldsvoða.“ Hann segir gríðarlegt öryggi fólgið í tengingu við stjórnstöð Securitas þegar kemur að eldvörnum og rafmagni. „Til eru mýmargar sögur af öryggisvörðum sem bjargað hafa matvælum frá eyðileggingu úr frystikistum og kæliskápum þegar rafmagn hefur farið af þegar húsráðendur voru að heiman. Áhugamaður um matseld á Seltjarnarnesi er sagður málkunnugur starfsmönnum stjórnstöðvar eftir að tilraunir hans í eldhúsinu hafa ítrekað sett reykskynjara hússins í gang. Hann er þó mjög sáttur vegna þess að hann finnur og veit að við erum á vaktinni,“ segir Hjörtur af festu.Lægri tryggingar Sum tryggingafélög bjóða sérstakan afslátt af tryggingum til viðskiptavina Securitas. Að sögn Hjartar er ástæðan einfaldlega sú að forvarnir virki. „Auk reykskynjara, slökkvitækja og öryggiskerfa Securitas má nefna vatnsskynjara og gasskynjara sem dregið geta úr og jafnvel komið í veg fyrir tjón af völdum bilana og óhappa.“ Þjónustan gengur undir nafninu Heimavörn og er sérsniðin að óskum viðskiptavina. „Sams konar lausn, en þó með önnur atriði í huga, heitir Sumarhúsavörn og nýtur æ meiri vinsælda enda sumarhús orðin sem annað heimili margra sem þar vilja njóta áhyggjuleysis og öryggis,“ segir Hjörtur.Öryggishnappur mikilvægt öryggistæki Þessa dagana er langmest aukning í öryggishnöppum hjá Securitas. „Það er vandfundin betri leið til að tryggja hugarró þeirra sem teknir eru að reskjast en að nota öryggishnapp, að ekki sé talað um aðstandendur þeirra,“ segir Hjörtur. Öryggishnappur Securitas eykur öryggi þeirra sem hann bera og dregur úr áhyggjum umhyggjusamra aðstandenda. „Stjórnstöð Securitas bregst snarlega við hverju því boði sem frá öryggishnappi berst,“ segir Hjörtur og ítrekar að allir sem orðnir séu 67 ára og eldri geti sótt um að fá niðurgreiddan öryggishnapp að uppfylltum vissum skilyrðum. „Ég held að öryggishnappur gæti verið óskajólagjöfin fyrir ömmu og afa um þessi jól,” segir Hjörtur og víst er að bæði skynsemi og umhyggja felst í því. Securitas er í Skeifunni 8. Sjá nánar á www.securitas.is.
Mest lesið Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Viðskipti innlent SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Bolabítur á buxnaskálm: Fjöldi „kerfisfræðinga“ að misnota veikindaréttinn Atvinnulíf Fleiri fréttir F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum BYKO PLÚS er nýr fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Tímamótasamningar í íslensku sjónvarpi Topp fimm tólin í verkfærakistuna Yfir 20.000 viðskiptavinir og tíföldun gengis á fimm árum Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Sjá meira