Yairina Rodriguez, matreiðslumaður á Forréttabarnum, verður hér á Íslandi yfir jólin í annað sinn. Hún er frá Dóminíska lýðveldinu en hefur búið hérna síðastliðin átta ár. "Ég ætla að kynna manninn minn fyrir íslenskum jólamat," segir Yairina.
"Jólahefðir í Dóminíska lýðveldinu eru allt aðrar en íslenskar og matarmenningin sömuleiðis. Þar erum við með hlaðborð á jólunum og borðum mikið af kalkúna- og kjúklingakjöti, purusteik, salati og ávöxtum. Það er þó líkt með löndunum að öll fjölskyldan hittist og borðar saman."
Í ár ætlar Yairina að hafa dóminískan og íslenskan mat á jólaborðinu. "Ég ætla að vera með hefðbundinn mat að heiman og líka graflax, hamborgarhrygg, hangikjöt og sykurbrúnaðar kartöflur en þær eru í miklu uppáhaldi hjá mér," segir Yairina og hlær.

½ gæsabringa
1 tsk. timjan (ferskt, nota bara laufin)
1-2 msk. hveiti
1 msk. ólífuolía
2 msk. steinseljuraspur (brauðteningar + steinselja, sett í blandara)
salt og pipar
Bringan hökkuð í matreiðsluvél ásamt hveiti, timjan, ólífuolíu, salti og pipar eftir smekk. Mótað í bollur. steikt í olíu og smjöri í 2-3 mínútur og velt upp úr steinselju.
Gæsasalat
½ gæsabringa
100 g klettasalat
1 rauðrófa
100 g bygg
10 g salthnetur
50 g piparostur
10 g trönuber
200 g smjör
100 g sykur
½ kanilstöng
½ blómkálshaus
50 dl mjólk
Bringan er létt söltuð og sykruð og látin standa í kæli í tvær klukkustundir. Sett í reyk með hickory-spæni (reykspæni) í álbakka á grilli í 15-20 mínútur. Kláruð í ofni á 160°C í 6-8 mínútur og látin hvíla og kæld. Því næst er hún skorin í þunnar sneiðar og sett á disk ásamt trönuberjum, salthnetum, klettasalati og soðnu byggi.
Rauðrófu og piparostur
Skerið rauðrófur í þunnar sneiðar, (helst í áleggshníf) og rúllið þeim upp með piparostakremi.
Bláberjasósa
Bláber, sykur og kanilstöng soðin saman í fimm mínútur.
Blómkálsmauk
Blómkál bakað í ofni með smjöri og olíu í tuttugu mínútur á 160 °C.
Blómkálið maukað í matreiðsluvél með salti og pipar og volgri mjólk. -lbh