Volt er mættur 3. janúar 2013 16:00 Chevrolet Volt er söluhæsti rafmagnsbíll í heimi
Rafbíllinn Chevrolet Volt er kominn til landsins og verður bíllinn kynntur hjá Bílabúð Benna næstkomandi laugardag.Rafbíllinn Chevrolet Volt er kominn til landsins og verður bíllinn kynntur hjá Bílabúð Benna næstkomandi laugardag. Volt kemst um 60 km á rafhleðslunni einni saman og framleiðir auk þess eigin raforku sem lengir heildarökudrægi bílsins í allt að 500 km. "Volt er staðfesting á stöðu Chevrolet sem eins framsæknasta bílaframleiðanda heims", er haft eftir forsvarsmönnum Bílabúðar Benna. Segja þeir að stór orð hafi nú þegar verið höfð um hann og Volt hafi hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar á mörkuðum bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. "Volt hefur verið á Bandaríkjamarkaði í tvö ár og eigendurnir þar hafa sett hann á topp ánægjulistans bæði árin. Volt var einnig útnefndur Bíll ársins 2011 af bæði Automobile Magazine og fagritinu Motor Trend. Hann hefur jafnframt hlotið sæmdarheitið "Umhverfisbíll ársins 2011" hjá tímaritinu Green Car Journal. Nýjasta afrekið er afgerandi sigur á bílasýningunni í Genf þar sem hann hlaut titilinn "Bíll ársins 2012". Dómnefndin var skipuð 59 leiðandi bílablaðamönnum frá 23 Evrópuríkjum." Chevrolet Volt verður frumsýndur gestum og gangandi laugardaginn 5. janúar, frá kl. 12 til 18 í Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8.
Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Innlent Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Innlent