Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Birgir Olgeirsson skrifar 22. október 2026 11:57 Bæta á öryggi farþega í Mjódd með nýrri lýsingu, öryggiskerfi og bættu aðgengi. Endurbætur á farþegasalnum standa yfir og eiga að klárast 5. desember. Vísir/Vilhelm Farþegasalurinn í Mjódd er tekinn í gegn og undirbúnar eru umfangsmiklar endurbætur á strætóstöðinni sjálfri. Skipta á öllu ofnakerfi salarins, endurnýja sætisaðstöðuna og setja upp nýja lýsingu og öryggiskerfi. Ofbeldi á svæðinu og slæmt ástand aðstöðunnar eru meðal ástæðna framkvæmdanna.
Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímasetning er óstaðfest. Salurinn endurnýjaður og stöðinni breytt Auk þess að skipta um ofnakerfið á að lagfæra rafmagn, mála allan farþegasalinn og gluggana og koma fyrir nýjum sætum. Skjáir munu sýna rauntímaupplýsingar um ferðir Strætó og vegglistaverk eftir Stefán Óla Baldursson prýða tvo veggi salarins. Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir umgengni á svæðinu hafa verið ábótavant og ástand aðstöðunnar kallað á framkvæmdir. Rafvirki sé þegar að störfum í salnum og málningarvinna í gangi. Úr kynningu á framkvæmdunum þar sem farið er yfir núverandi stöðu tengdri almenningssamsgöngum. Reykjavík Við strætóstöðina sjálfa á að bæta gönguþveranir og tryggja þrepalaust innstig í vagnana. Þar á jafnframt að bæta lýsingu, skjól og sætisaðstöðu og gróðursetja tré og útbúa gróðurbeð. Samkvæmt kynningu borgarinnar á framkvæmdunum er hönnun stöðvarinnar á lokametrunum. Kostnaðaráætlun á að liggja fyrir í nóvember og mögulegt útboð er fyrirhugað í febrúar. Ekki kemur fram hvenær útiframkvæmdunum á að ljúka. Vonast til að breytt umhverfi hafi áhrif á hegðun Þegar hefur verið ráðist í aðgerðir til að auka öryggi. Bekkur og ruslatunna voru fjarlægð að beiðni lögreglu og gróður snyrtur til að bæta sýn eftirlitsmyndavéla. Lýsing á gönguleið að undirgöngum hefur einnig verið bætt. Fegra á farþegasalinn með vegglistaverki og gera sætisaðstöðuna meira aðlaðandi. Reykjavík Spurð um ofbeldið sem vísað er til í kynningunni segir Guðný að snyrtilegra umhverfi geti haft áhrif á hegðun þeirra sem fari um svæðið. „Það er bara þannig að þegar maður er ekki í fögru umhverfi að þá kannski dregur það fram einhverja ákveðna hegðun þannig að það var bara ákveðið að ráðast í þessar framkvæmdir til þess að gera þessa stoppistöð snyrtilegri og það var ekkert vanþörf á því.“ Endurbæta á alla sætisaðstöðu í farþegasalnum með húsgögnum sem eru fest við gólfið og þurfa lítið viðhald.reykjavík Hún vonast jafnframt til þess að breytingarnar verði til þess að fleiri nýti stöðina. „Þannig að með þessu erum við að vonast til þess að fólk beri meiri virðingu fyrir þessu umhverfi sem að þarna er.“ Kona varð fyrir árás sex ungmenna Vísir hefur áður fjallað um ofbeldi og öryggisvanda í Mjódd. Þann 11. maí var greint frá árás á konu á fimmtugsaldri við biðskýli í Mjódd. Sex ungmenni á aldrinum fjórtán til sextán ára voru þá til rannsóknar vegna árásarinnar. Lögregla hafði undir höndum myndbönd sem sýndu ungmennin veitast að konunni með höggum og spörkum og rífa í hár hennar. Konan leitaði sér læknishjálpar vegna áverka á andliti og líkama. Í framhaldsfrétt tveimur dögum síðar sagði Sigrún Kristín Jónasdóttir lögreglufulltrúi myndböndin sýna talsverða heift. Barnavernd hafði verið kölluð til og tveir úr hópnum sendir á Stuðla vegna þess að þeir voru undir áhrifum vímuefna. Hluti hópsins hafði áður komið við sögu lögreglu vegna óspekta í Mjódd. Vörðu fjórum milljónum á mánuði í gæslu Í júlí ræddi Vísir við Pétur Karlsson, trúnaðarmann hjá Strætó, um öryggi vagnstjóra. Hann sagði ógnvænlega hegðun daglegt brauð í starfinu, þótt líkamlegar árásir væru ekki daglegur viðburður. „Fólk telur sig ekki nógu öruggt í þessu,“ sagði Pétur, sem taldi þörf á öryggisgæslu í vögnum eða á stöðvum á borð við Mjódd. Í sömu frétt kom fram að Strætó hefði áður varið fjórum milljónum króna á mánuði í öryggisgæslu í Mjódd, en gæslunni hefði verið hætt í júní 2025.
Skipulagsmál Strætó Mjódd Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Sjá meira