Vetnisdrifinn Hyundai ix35 27. febrúar 2013 16:15
Ætla að framleiða 1.000 eintök til prófana til ársins 2015. Margir bílaframleiðendur hafa uppi stórar áætlanir um framleiðslu vetnisbíla. Hyundai er einn þeirra og mun fyrirtækið sýna jepplinginn ix35 með slíkum búnaði á Genfarsýningunni sem hefst 5. mars. Hyundai var reyndar búið að tilkynna það fyrir þónokkru að framleiðsla á Hyundai ix35 vetnisbíl hæfist fyrir enda árs 2012. En við fyrirgefum þeim það, enda ekki í fyrsta skipti sem áætlun um þróun nýs bíls stenst ekki hjá bílaframleiðendum. Hyundai ætlar að framleiða 1.000 slíka bíla til prófunar til ársins 2015, en þá á framleiðsla þeirra að hefjast fyrir alvöru. Það ár er einmitt árið sem flest önnur bílafyrirtæki ætla að spýta í lófana varðandi fjöldaframleiðslu vetnisbíla og fara þar fremst í flokki Toyota og Nissan. Eins og fyrri daginn virðast Norðurlöndin vera móttækilegust fyrir vetnisbílum og fyrstu bílarnir sem Hyundai hefur framleitt af ix35 fara til Danmerkur og Svíþjóðar til prófana. Spár bílaframleiðendanna er sú að kostnaður við þróun og þar af leiðandi verð vetnisbíla muni fara verulega lækkandi uppúr árinu 2015. Eftir það verða margar gerðir bílaframleiðendanna í boði vetnisdrifnir. Hyundai ix35 vetnisbíllinn hefur drægni uppá 594 kílómetra og hámarkshraðann 160 km/klst. Í myndskeiðinu að ofan segir frá mjög metnaðarfullri áætlun Breta um að gera eyjuna Isle of Wight, sem þeir eru farnir að kalla EcoIsland, algjörlega sjálfbæra um orku frá og með árinu 2020. Á það einnig við orku til húshitunar.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent