Veiði

Veiðivísir orðinn sýnilegri og kominn á Facebook

Hér sést hvar hnappurinn inn á Veiðivísi er.
Hér sést hvar hnappurinn inn á Veiðivísi er.
Veiðivísir er nú orðinn sýnilegri. Búið er að setja hnapp efst á forsíðu Vísis og með einum smelli komast menn beint inn á Veiðivísi. Áður þurftu veiðiáhugamenn að fara smá krókaleið til að komast inn á vefinn.

Auk þessa hefur verið búinn til „,mest lesið" dálkur vinstra megin á Veiðivísi þar sem einungis detta inn mest lesnu veiðifréttirnar. Áður fóru vinsælustu veiðifréttirnar inn á „mest lesið" í sportinu þar sem þær voru í bland við fótbolta, handbolta og aðrar íþróttafréttir. Ritstjórn Veiðivísis telur það til bóta að veiðimenn hafi yfirsýn yfir mest lesnu veiðifréttirnar.

Í þriðja lagi er Veiðivísir nú kominn með sína eigin Facebook síðu. Inn á Facebook-síðuna detta allar fréttir sem skrifaðar eru inn á Veiðivísi og því tilvalið fyrir veiðimenn að „líka" við síðuna. Þannig fá þér allar nýjustu fréttirnar í fréttaveituna (News Feed). Facebook-síða Veiðivísis er líka hugsuð sem umræðuvettvangur fyrir veiðiáhugamenn. Hér er hægt að fara beint inn á Veiðivísi á Facebook.

Frá 1. maí á síðasta ári hafa fjórir blaðamenn, sem samtals eru með um 50 ára reynslu í blaðamennsku, skrifað veiðifréttir inn á Veiðivísi. Í bland við stuttar fréttir hefur verið lögð sérstök áhersla á lengri greinar og fréttaskýringar. Allt er þetta gert í þeim tilgangi að veita veiðimönnum sem bestar upplýsingar og innsýn í veiðiheiminn. Á þeim tæpu 10 mánuðum sem liðnir eru hafa birst hátt í 700 fréttir, greinar og fréttaskýringar á Veiðivísi.

Ritstjórn Veiðivísis eru skipuð eftirtöldum blaðamönnum:

Garðar Örn Úlfarsson, blaðamaður á Fréttablaðinu - gar@frettabladid.is

Kristján Hjálmarsson, fréttastjóri á Fréttablaðinu - kristjan@frettabladid.is

Svavar Hávarðsson, blaðamaður á Fréttablaðinu - svavar@frettabladid.is

Trausti Hafliðason, fréttastjóri á Fréttablaðinu - trausti@frettabladid.is

Ef menn eru með áhugaverða fréttapunkta þá endilega sendið þá á einhvern okkar.

Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við Árna Þór Sævarsson á auglýsingadeild 365. Árni Þór er með netfangið arnis@365.is

Góðar stundir,

ritstjórn Veiðivísis.








×