Mexíkóskum bílaframleiðendum fjölgar Finnur Thorlacius skrifar 18. mars 2013 15:29 Þessi mynd sýnir ekki mikið af fyrsta bíl VUHL en hann gæti orðið spennandi
VUHL hefur fengið fjárstuðning frá Mexíkóskum yfirvöldum og meðal birgja eru Ford og Magna Steyr. Það er ekki einungis Mastretta frá Mexíkó sem hyggst framleiða bíla á næstunni, nú er annar slíkur kominn fram sem heitir VUHL. Skammstöfunin stendur fyrir "Vehicles of Ultra-lightweight and High-performance" og eins og nærri má geta ætlar fyrirtækið að framleiða sportbíla, eða öllu heldur ofursportbíla. Þeir verða í raun keppnisbílar sem löglegir verða á götunum. Ætlar VUHL að kynna fyrsta bíl sinn, VUHL 05 á bílasýningunni "Goodwood Festival of Speed" á þessu ári. Stofnendur VUHL eru bræður sem erfðu bílaáhuga sinn frá föður þeirra, Guillermo Echeverria, sem var keppnisökumaður í GT- og formúlukeppnum. Grind nýja bílsins verður smíðuð í Kanada, en bíllinn síðan settur saman í Mexico City. Birgjar VUHL eru meðal annars Magna Steyr og Ford. Hefur VUHL fengið fjárhagslegan stuðning frá Mexíkóskum yfirvöldum.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent