Körfubolti

Cuban baulaði á Derek Fisher

Mark Cuban var líflegur í nótt.
Mark Cuban var líflegur í nótt.
Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks, er allt annað en sáttur við leikstjórnandann Derek Fisher hjá Oklahoma Thunder. Hinn skrautlegi eigandi Mavs sýndi það í verki í nótt. Þá baulaði Cuban á Fisher og sem og aðrir áhorfendur á heimavelli Dallas.

Það eru ekki nema tveir mánuðir síðan Mavs leyfðu Fisher að fara frá félaginu á þeim forsendum að hann saknaði fjölskyldunnar. Söknuðurinn var ekki meiri en svo að hann er kominn á samning hjá Thunder.

Cuban sárnaði við það og fannst lélegt hjá Fisher að ræða ekki einu sinni málið við hann.

"Ég mun baula á hann í kvöld og vonandi gerir aðrir slíkt hið sama," sagði Cuban fyrir leik leik. Hann stóð svo sannarlega ekki einn fyrir baulinu.

Er Fisher steig inn á völlinn var hraustlega baulað á hann. Það var svo mikið fagnað er hann braut af sér í fyrsta skipti í leik.

Fisher vildi ekki taka þátt í neinum leiðindum eftir leik og hrósaði Cuban fyrir þann metnað sem hann hefur fyrir hjá félaginu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×