Körfubolti

Chris Paul skoraði nánast liggjandi | Myndband

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Chris Paul hékk endalaust í nótt.
Chris Paul hékk endalaust í nótt. Mynd/Nordic Photos/Getty
Chris Paul skoraði frábæra körfu í leik gegn Brooklyn Nets í NBA körfuboltanum í nótt. Paul, sem leikur með LA Clippers, hékk endalaust í loftinu og setti boltann svo í körfuna þegar hann var nánast lagstur í gólfið.

Leikmenn Nest trúðu vart sínum eigin augum þegar boltinn fór niður. Ekki nóg með að Paul hafi sett niður tvö stig þá fékk hann villu að auki dæmda á varnarmenn Nets og vítaskot. Mögnuð tilþrif og með körfunni tryggði Paul liði sínu sigur í leiknum.

Clippers vann leikinn í nótt, 101-95. Paul átti skínandi góðan leik og skoraði 29 stig.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×