Carla Bruni aftur í fyrirsætustörfin 21. mars 2013 10:30
Fyrrverandi forsetafrúin, söngkonan og fyrirsætan Carla Bruni mun snúa aftur til fyrirsætustarfa á næstu mánuðum. Hún skrifaði undir samning við skartgriparisann Bulgari á dögunum og verður andlit nýjustu auglýsingaherferðar fyrirtækisins.Carla, sem hefur meðal annars prýtt forsíðu Vogue, sást mynduð af stjörnuljósmyndaranum Terry Richardsson í París í síðustu viku og talið er að um myndatöku fyrir Bulgari hafi verið að ræða. Hún var áberandi á tískupöllunum á tíunda áratugnum, en þá gekk hún fyrir tískuhús á borð við Chanel, Christian Dior og Yves Saint Laurent. Árið 1997 yfirgaf hún fyrirsætuheiminn til að byrja tónlistarferil sinn en tók sér svo frí frá sviðsljósinu þegar hún giftist Nicolas Sarkozy, þáverandi forseta Frakklands, árið 2008. Bruni stefnir á að senda frá sér nýja plötu í næsta mánuði sem mun bera nafnið „Little French Songs".Með eiginmanninum, Nicolas Sarkozy.Carla Bruni yfirgaf fyrirsætuheiminn til að hefja tónlistarferil árið 1998.
Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Áskorun Fleiri fréttir Minningar um mömmu það allra verðmætasta Sól sló í gegn á tískuviku í London Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira