Jenný á þetta fyllilega skilið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. apríl 2013 10:45 Guðný Jenný og Stefán með verðlaunin sín í gær. Mynd/Stefán
Stefán Arnarson er ánægður með frammistöðu markvarðar síns hjá Val, Guðnýju Jennýju Ásmundsdóttur, sem í gær var valin besti leikmaður seinni hluta tímabilsins í N1-deild kvenna. Valur varð deildarmeistari og fer því inn í úrslitakeppnina sem hefst í kvöld með sterka stöðu. Alls átti Valur fjóra leikmenn í úrvalsliðinu auk þess sem að Stefán var valinn besti þjálfarinn. „Jenný hefur verið frábær í vetur og á þetta fyllilega skilið," sagði Stefán í samtali við Vísi í gær. „Hún hætti auðvitað á sínum tíma og æfði ekkert í fjögur ár. Svo kom hún til okkar árið 2010 sem þriðji markvörður en keppnisskap hennar og hefur fleytt henni í langt. Í dag er hún besti markvörður landsins." Florentina Stanciu, markvörður ÍBV, fékk á dögunum ríkisborgararétt og er því orðin gjaldgeng með íslenska landsliðinu. Stefán fagnar því. „Mér finnst frábært að Floru í landsliðið, enda hjálpar það landsliðinu gríðarlega mikið að vera með tvo góða markverði. Það þurfa að vera tveir sterkir leikmenn í hverri stöðu í landsliðinu." Valur mætir Haukum í úrslitakeppninni í kvöld en flestir reikna með nokkuð auðveldum sigri deildarmeistaranna í þeirri viðureign. Valsmenn tryggðu sér einnig bikarmeistaratitilinn í síðasta mánuði. „Við kláruðum deildina fyrir bikarinn en eftir það datt þetta aðeins niður. Við fórum til dæmis til Vestmannaeyja og fengum skell þar." „Í úrslitakeppninni byrja öll lið með hreint borð og það getur því allt gerst. Haukar eru með ungt lið sem hefur bætt sig mikið. Við sýndum í Vestmannaeyjum að við getum spilað illa og því höfum við ekki efni á neinu vanmati."
Olís-deild kvenna Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Fótbolti Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira