Veiði

100 urriðar hafa veiðst í Elliðaánum

Veiðimaður reynir við urriðann skammt frá Ármótum í Elliðaánum.
Veiðimaður reynir við urriðann skammt frá Ármótum í Elliðaánum. Mynd / Trausti Hafliðason

Það sem af er maímánuði hafa veiðst 100 urriðar í Elliðaánum. Þetta kemur fram á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur, svfr.is. Í vorveiðinni, sem stendur til 5. júní, er veitt í ofanverðum Elliðaánum eða fyrir ofan Hraun.

„Sem fyrr hafa drýgstu veiðistaðirnir verið Höfuðhylur ásamt Hólmatagli annars vegar, og hins vegar svokölluð Ármót, þar sem Bugða fellur til Elliðaár," segir á vef SVFR. „Framan af var veiði frekar dræm sökum kulda, en undanfarið hefur mjög ræst úr, og þeir sem brúka þurrflugu hafa gert mjög góðar vaktir og náð 10-12 urriðum. Skilur þar augljóslega á milli þeirra sem veiða vel, og þeirra sem fá minna, hversu vel þurrflugan virkar þegar að fluga er að klekjast út."

Á vef SVFR kemur fram að veiðst hafi allt að fimm punda urriðar í vorveiðinni.

Muna að skila veiðiskýrslu

Ágætt er að ítreka það við veiðimenn sem stunda veiðar í Elliðánum að skila veiðiskýrslu til skrifstofu Stangaveiðifélagsins. Ber veiðimönnum að senda tölvupóst á netfangið svfr@svfr.is. Í honum þarf að koma fram nafn veiðimanns, veiðistaður, lengd/þyngd á fiski  og nafn á agni. Þessar upplýsingar eru bráðnauðsynlegar til þess að hægt sé að gefa sem besta mynd af lífríki Elliðaánna og fiskistofnum þeirra.



trausti@frettabladid.is






×