Matur

Helgarmaturinn - Föstudagskjúklingur

Kolbrún Ýr Árnadóttir
Kolbrún Ýr Árnadóttir

Kolbrún Ýr Árnadóttir, deilir hér unaðslegum kjúklingarétti sem hentar vel á föstudagskvöldi þegar þú vilt elda eitthvað ljúffengt en ekki eyða öllu kvöldinu í eldhúsinu.

4 kjúklingabringur

1 krukka mangó chutney (Sharwood’s)

1 msk. karrý

1 msk. tandoori masala krydd

½ l matreiðslurjómi

Aðferð:

Skerið kjúklingabringurnar í bita, steikið á pönnu (ekki fullelda) og kryddið með tandoori masala kryddinu.

Mangó chutney, matreiðslurjóminn og karrýið í pott og mallað saman við vægan hita.

Kjúklingurinn settur í eldfast mót, sósunni úr pottinum hellt yfir og sett inn í ofn og kjúklingurinn fær að klára eldunina þar. í ca 20-30 mín. við 180 °C (fer eftir hversu lengi þú steikir kjúklinginn á pönnunni).

Hrísgrjón

4 bananar skornir í bita og kókos stráð yfir (börnin elska þetta meðlæti)

Naan-brauð

Sósa

2 dollur sýrður rjómi

1 gráðostur

2 hvítlauksrif

Skerið gráðostinn í bita og hrærið út í sýrða rjómann, kremjið hvítlaukinn og hrærið út í.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.