Áður hafði leik tvívegis verið frestað vegna veðurs og á meirihluti kylfinga því eftir að ljúka fyrsta hring. Þeirra á meðal er Donald sem er á fjórum höggum undir pari eftir 13 holur.
Donald fékk fugl á þremur holum í röð áður en fresta þurfti leik. Vafalítið svekkjandi fyrir þann enska sem var í miklu stuði.
Á hæla Donald koma Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson og Ástralinn Adam Scott á þremur undir pari. Mickelson er einn fárra í efri hlutanum sem lauk hringnum en Scott lauk ellefu holum í gær.

Englendingurinn Lee Westwood kann hefðunum á Merion-vellinum í Pennsilvaníu litlar þakkir. Westwood átti frábært högg inn á flöt á tólftu holu. Boltinn hrökk hins vegar af körfunni á toppi pinnans og aftur út af flötinni. Gera má ráð fyrir að hefðbundið flagg hefði skilað betri útkomu fyrir Westwood sem er á einu höggi undir pari eftir þrettán holur.
Stöðuna í mótinu má sjá hér. Falleg tilþrif frá fyrsta deginum á Merion má sjá í spilaranum hér að ofan.