Hvers manns hugljúfi Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 20. júní 2013 11:00 Í kvikmyndum var Gandolfini iðulega í aukahlutverkum, og eflaust margir sem þekkja andlit leikarans sem þekktu ekki nafn hans.
Stjörnurnar í Hollywood minnast leikarans James Gandolfini á Twitter, en hann lést úr hjartaáfalli í gær aðeins 51 árs gamall. Gandolfini lék jafnt á sviði sem í kvikmyndum, og meðal þeirra má nefna myndirnar True Romance, Get Shorty, Crimson Tide og Zero Dark Thirty. Í kvikmyndum var Gandolfini iðulega í aukahlutverkum, og eflaust margir sem þekkja andlit leikarans sem þekktu ekki nafn hans. Þekktastur var hann samt fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum The Sopranos, þar sem hann var í aðalhlutverkinu sem mafíósinn Tony Soprano. Gandolfini var staddur á Ítalíu ásamt syni sínum þegar hann lést, og minntust kollegar hans í Hollywood hans í gærkvöldi á samfélagsmiðlum internetsins. Miðað við tístin hefur Gandolfini verið hvers manns hugljúfi, og rímar það við það orðspor sem hann hafði, þrátt fyrir að leikarinn hafi margoft leikið durta og dusilmenni.Gandolfini fór yfir feril sinn með sjónvarpsmanninum James Lipton í þættinum Inside the Actor's Studio þann 17. október 2004.
Mest lesið Vinslit, ofbeldi, líkamssmánun og niðurlæging í ANTM Lífið Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið „Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Lífið Mun aldrei flytja aftur heim Lífið Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Tónlist Krakkatía vikunnar: Api, fjall og Barbie Lífið Trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli vegna meintrar sprengju Lífið Segir nei takk við jakkafatapésana Tíska og hönnun Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Lífið Íslensk hjón búa umkringd öryggisvörðum Lífið Fleiri fréttir Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira