Sannleikurinn: Blá ruslatunna fyrir ruslpóst Andri Þór Sturluson skrifar 7. október 2013 21:00 Liturinn á nýju sorptunnunum kallast víst "borgarblár“
10. október næstkomandi taka í gildi nýjar reglur um sorphirðu í Reykjavík. Eiga þær að einfalda flokkun heimilissorps en núverandi kerfi hefur reynst of flókið fyrir takmarkaða heila borgarbúa sem eiga í fullu fangi með að hugsa aðeins um sjálfan sig. Borgin hefur lengi viljað auka flokkun á sorpi enda framleiðir hver Reykvíkingur að meðaltali tífalt meira af sorpi en aðrir landsmenn. Hafa ber þó í huga að flestir tónlistarmenn landsins eru búsettir í Reykjavík og margir þeirra gefa eitthvað út á hverju ári. Nýju reglurnar fela í sér að borgarbúar borga 6.500 krónur á ári fyrir bláa sorptunnu fyrir alla auglýsingabæklingana og ruslpóstinn sem þeir náðarsamlega fá en ef snefill af pappír finnst í sorptunnu af öðrum lit en bláum, eru tunnurnar þeirra ekki losaðar af starfsmönnum Sorphirðu Reykjavíkur. Þá þarf fólk að hreinsa pappírinn úr tunnunni sinni og flokka eða það sem er auðveldara, bara henda ruslinu sínu út á götu þar sem starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar neyðast til að fjarlæga það. Einnig er hægt að gera eins og Reykjavíkurborg og einfaldlega losa sig við sorpið sitt í Reykjanesbæ.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en hún er drasl.
Harmageddon Mest lesið Fannst ekki spennandi að spila Little Talks fimm sinnum á dag Harmageddon Árni Hjörvar spilar með John Fogerty Harmageddon Sá eini sem getur komið í veg fyrir stríð núna er Ólafur Ragnar Harmageddon Vegakerfi úr sólarsellum er klárlega framtíðin Harmageddon Dave Grohl segir Barack Obama vera rokkara Harmageddon Hljómsveitin Vök með útgáfutónleika í kvöld Harmageddon „Þeir sleppa aðal sannleikanum“ Harmageddon John Grant leikur lagið It´s Easier í betri stofu Harmageddon Harmageddon Sannleikurinn: Foreldrar sem hata börnin sín ekki líklegir til að bólusetja þau Harmageddon Myndband frá einum síðustu tónleikum Nirvana Harmageddon