Samkynhneigðir Aríar taka höndum saman Óskar Hallgrímsson skrifar 4. október 2013 15:52
Rússland er í dag einna helst þekkt fyrir massaðan forseta, stuðning við ríkisstjórn Sýrlands og hatur í garð samkynhneigðra. Fréttir frá Rússlandi síðastliðið ár hafa einkennst af ofangreindum atriðum. Þar hefur verið sérstaklega áberandi skipulagt ofbeldi og misþyrmingar á hommum. Ástandið versnaði til muna eftir að sett voru þar lög sem gerðu svokallaðan samkynhneigðan áróður ólöglegan. Þá eru þar ákveðnir öfgahópar sem hafa tekið lögin mjög bókstaflega. Samtök nýnasista hafa til að mynda verið mjög dugleg við að elta uppi rússneska homma til þess eins að misþyrma og pynta þá fyrir framan myndavélar. Myndskeiðum er síðan hlaðið upp á netið fyrir heiminn til að sjá.En ekki er allur nasisminn eins. Í Rússlandi finnast nefnilega Samtök Samkynhneigðra Aría. Þeir berjast meðal annars fyrir því að hvítir hommar fái ekki að blandast með svörtum hommum og haldi þannig blóðinu hreinu í Rússlandi. Þeir vilja hreinsa jörðina af óhreinu fólki sem þeirra mati á ekkert erindi á henni. Samtökin hafa verið til í Rússlandi í rúm 20 ár og eru líka annars staðar í heiminum. Þó er hreyfingin stærst í Rússland og þá sérstaklega í Moskvu, þar sem hún telur um 1.500–1.700 meðlimi. Þetta kann að koma sem þyrnir í augu margra lesenda okkar þar sem Adolf Hitler lét handtaka á árunum 1933–1945 um það bil hundrað þúsund homma og lesbíur. Þar af enduðu 5000–15000 í útrýmingarbúðum. Þetta virðist ekki trufla meðlimi samtakanna og tala þau um að það sé í raun ekkert sem að standi á móti því að karlmenn séu með öðrum karlmönnum, svo lengi þeir séu hvítir og frá Rússlandi. Samtökin berjast fyrir réttindum samkynhneigðra þar í landi og gera það í samvinnu við önnur samtök sem eiga í sömu baráttu. Þau segjast berjast gegn óréttlæti og mismunun samkynhneigðra. En um leið mismuna þau sjálf af sama krafti þeim sem ekki eru hvítir á hörund. Þetta telja samtökin ekki vera tvöfalt siðgæði þar sem hlutirnir séu alfarið ótengdir að þeirra mati. Samkvæmt viðtali við einn af meðlimum samtakanna sem Vice Magazine tók á dögunum þá eru meðlimir samtakanna mikið fyrir karlmennsku. Eru þeir flestir heillaðir af BDSM senunni þar sem margir þeirra eiga sér jafnvel sinn eigin kynlífsþræl. Þá finnst þeim ekki leiðinlegt að klæða sig upp í leður og hefja karlmennskuna upp til hæstu hæða.Hér má sjá viðtal sem blaðamaður Vice tók við einn af meðlimum Samkynhneigðra Aría.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: "Ef hún hefði flúið með þrjá danska ketti til Íslands þá væri búið að finna þá“ Harmageddon Tónarúm - VÖK Harmageddon Ný klippa úr kvikmynd um Jimi Hendrix Harmageddon „Við þurfum að kenna krökkum að taka eiturlyf með öruggum hætti“ Harmageddon Nítján ára konungur gerir það gott Harmageddon Íslendingurinn sem er að slá í gegn í Dexter Harmageddon Ný lög á nýju ári Harmageddon Eins og djúsí Big Mac með stórum frönskum Harmageddon Sannleikurinn: Pizzukvöld yfir The Biggest Loser Harmageddon Trúleysi gerir tónlist góða Harmageddon
Sannleikurinn: "Ef hún hefði flúið með þrjá danska ketti til Íslands þá væri búið að finna þá“ Harmageddon
Sannleikurinn: "Ef hún hefði flúið með þrjá danska ketti til Íslands þá væri búið að finna þá“ Harmageddon