Íslenskir leiðtogar á sýndarveruleikana í Sochi í Rússlandi Andri Þór Sturluson skrifar 5. febrúar 2014 12:31 Þetta er bara eins og þegar Smáralind var byggð.
Í þætti BBC Panorama sem hægt er að horfa á í fullri lengd hér, kemur fram að enn sem komið er hefur enginn leiðtogi vestræns ríkist lýst því yfir að hann mæti á Ólympíuleikana í Sochi í Rússlandi.Lára Hanna Einarsdóttir benti á þáttinn á Facebook síðu sinni í gærkvöldi og leiðrétti frekar klaufalega villu sem þar kom fram en svo virðist sem þáttagerðarmenn hafi gleymt því að Ísland hefur meldað sig inn. Og ekki bara einn leiðtogi heldur þrír. Lára Hanna segir: „Nokkrir Fb-vinir linkuðu á BBC Panoramaþátt um Ólympíuleikana í Sochi í Rússlandi. Þið vitið hvað Panaorama er - rannsóknarblaðamannaþáttur. Endirinn var stuðandi, þar sagði: "Leikarnir hefjast eftir nokkra daga og ekki einn einasti leiðtogi vestræns ríkis hefur lýst yfir að þeir mæti." Ekki rétt. Þrír leiðtogar Íslands ætla að mæta - forseti Íslands, menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra. Hvorki meira né minna.“ Ekki bara ætla okkar hugdjörfu leiðtogar að mæta, þeir taka maka sína með og Ólafur Ragnar forseti ætlar auk þess að splæsa utanlandsferð á "fyrrverandi" eiginkonu sína Dorrit Moussaieff á okkar kostnað en þau hefðu þurft að vera búin að slíta samvistum ef þau færu ekki á svig við lög í skjóli stöðu sinnar. Harmageddon ræddi för Ólafs og "frú" á leikana, talaði við hlustendur og hægt er að hlusta á það hér.
Harmageddon Mest lesið Átökin verði staðbundin ef til þeirra kemur Harmageddon Þorgerður Katrín segir Íslendinga verða að hætta tala niður listir og menningu Harmageddon Samkynhneigðum óhætt á vetrarólympíuleikunum á meðan þeir láta börn vera Harmageddon Lýðræði, kynjaskipting, skólabúningar og sköpun í skólum Hjallastefnunnar Harmageddon Morrissey vill að prinsarnir Vilhjálmur og Harry skjóti sig Harmageddon Hljómsveitin Queens of the Stone Age komin í pásu Harmageddon Er endurkoma Oasis í kortunum? Harmageddon Myndir af Breivik nokkrum mínútum eftir handtöku Harmageddon Sannleikurinn: Pizzukvöld yfir The Biggest Loser Harmageddon Rússar banna texta og myndefni rokkhljómsveitar Harmageddon