Með laginu hvetur hljómsveitin hlustendur til þess að njóta lífsins á meðan tækifærið er til staðar. Hægt er að hlusta á lagið og niðurhala því frítt hér á Soundcloud.
Original Melody er skipuð þremur röppurum; IMMO, Charlie Marlowe og Sub-K, og einum upptökustjóra, Fonetik Simbol.
Í Indiana Jones koma góðir gestir við sögu, þar á meðal Ari Bragi Kárason á trompet, Birkir Blær Ingólfsson á saxófón, Bergur Þórisson á básúnu og bartónar karlakórs Kaffibarsins.
Original Melody vinnur nú að plötu sem er gefin út í fjórum hlutum. Fyrsti hlutinn bar nafnið Apollo Sessions og er þegar kominn út. Lagið Indiana Jones er af öðrum hluta plötunnar sem ber nafnið Banana Sessions og er að koma út. Allir hlutar plötunnar eru fáanlegir með endurgjaldslausu niðurhali á heimasíðu hljómsveitarinnar, http://omsessions.com
Original Melody kemur fram á Iceland Airwaves-hátíðinni í ár og spilar á Gamla Gauknum næstkomandi fimmtudag kl. 20:50. Auk þess mun O.M. spila eina "off-venue"- tónleika á Skuggabarnum næsta laugardag kl. 19:00.