Sannleikurinn: Gamall karl skipaður í nefnd Andri Þór Sturluson skrifar 6. nóvember 2013 20:00 Gamli karlinn með blýant sem hann fann á Árbæjarsafninu.
Gamall karl var í dag skipaður í nefnd. Hans hlutverk verður fyrst og fremst að sjá til þess að nefndin geri sem minnst, heiðri gömul og úreld sjónarmið og hella upp á te. Karlinn, Sigurður Líndal, er ævaforn og hefur átt sæti í hverri einustu nefnd sem sett hefur verið á laggirnar frá lýðveldisstofnun. Karlinn er óháður stjórnmálaflokkum en skoðanir hans samrýmast furðu vel skoðunum núverandi ráðamanna. Málið sem nefndin er skipuð til að þræta um þangað til það verður kæft aftur er að sjálfsögðu breytingar á stjórnarskránni en níu fulltrúar skipa nefndina. Þess má geta að fyrir þremur árum var þúsund manna nefnd að störfum, þverskurður þjóðarinnar, á þjóðfundi í Laugardalshöll en núverandi stjórnarflokkar komust að þeirri niðurstöðu að hennar tillögur sem stjórnlagaþing vann síðan með væru drasl og fengu því gamla karlinn til að sjá um þetta.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu og þar eru aldraðir oft fengnir í einhver verkefni.
Harmageddon Mest lesið Kate Moss glæsileg í Playboy Harmageddon Jack Live í kvöld: Kaleo, Jan Mayen og The Vintage Caravan Harmageddon Sannleikurinn: Lögreglumaðurinn segir það tilbreytingu að vera sá ákærði Harmageddon Lára Rúnars gefur út nýtt myndband Harmageddon Sannleikurinn: Brynjar Níelsson varpar enn einni sprengjunni Harmageddon Hver drap Kurt Cobain? Sýnishorn úr nýrri mynd Harmageddon Kostulegt samtal Frosta við Nígeríusvindlara sem lofar honum milljónum króna Harmageddon