Margir miðlar staðfesta að skítugt fólk sé hættulegt Frosti Logason skrifar 5. nóvember 2013 14:46 Mundir þú treysta þessu fólki fyrir börnunum þínum?
Íslenska þjóðin er slegin óhug eftir frásögn ungrar konu á Facebook, Elfu Þorsteinsdóttur, en þar greindi hún nýverið frá hræðilegri lífsreynslu sem hún og fjölskylda hennar urðu fyrir á Spáni í fyrra. Elfa er viss um að þar hafi verndarenglar, sem fylgdust með fjölskyldunni þennan dag, bjargað börnum hennar á síðustu stundu úr klóm harðsvíraðs glæpafólks sem ætlaði að ræna þeim, dópa upp og selja í þrælkun og barnavændi. Þetta veit Elfa vegna þess að fólkið var skítugt og öðruvísi en allt hitt fólkið á annars fallegri smábátahöfn í strandbænum Marbella þennan dag. Ef það er ekki nóg til að sannfæra ykkur, þá hefur Elfa einnig fengið sterka staðfestingu, frá nokkrum mismunandi miðlum, um að þarna hafi verið vel vakað yfir þeim og að þetta fólk hafi einmitt haft það í huga að koma börnunum í burtu. Elfa hvetur fólk til þess að nýta sér þessa hræðilegu reynslu fjölskyldunnar sem víti til varnaðar og hvetur Íslendinga til þess að passa vel upp á börnin sín á ferðalögum erlendis. Já kæru Íslendingar, við skulum gæta þess að börnin okkar séu ekki að blanda geði við fólk sem er öðruvísi en við. Það getur reynst stórhættulegt.
Harmageddon Mest lesið Óupplýstum æsifréttamanni pakkað saman af pollrólegum dýrafræðingi Harmageddon Sannleikurinn: Yfirmaður hjá RÚV býr frítt eins og forsetinn Harmageddon Sannleikurinn: Um vegi, hraun og auðmenn Harmageddon Átökin verði staðbundin ef til þeirra kemur Harmageddon Söngvari Blink 182 hættur í hljómsveitinni Harmageddon Gera á torgum það sem nasistar hefðu reynt að fela Harmageddon Nordic Playlist setur upp útvarpsstöð í Reykjavík Harmageddon Með rokkið í blóðinu Harmageddon Sannleikurinn: Brynjar Níelsson varpar enn einni sprengjunni Harmageddon Vildi ekki að persónulegir brestir vörpuðu skugga á störf Pírata Harmageddon