Neyðarfundur í Menntaskólanum í Reykjavík Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 19. nóvember 2013 10:56 Borgar Þór Einarsson er formaður skólanefndar Menntaskólans í Reykjavík. „
Stjórnendur skólans standa í raun ráðþrota frammi fyrir þessari stöðu. Ef ekki væri fyrir ótrúlega fórnfýsi þeirra og í raun og veru sjálfboðavinnu þá væri skólastarfið farið að líða verulega fyrir þetta,“ segir Borgar Þór Einarsson, formaður skólanefndar Menntaskólans í Reykjavík í samtali við Vísi. Neyðarfundur verður haldinn í MR í hádeginu í dag vegna stöðu sem upp er komin í fjármálum skólans. Borgar Þór segir að fjárframlög til skólans hafi dregist jafnt og þétt saman síðustu árin og í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fái nemendur MR enn og aftur lægst framlög allra framhaldsskóla á landinu. „Stjórnendur skólans hafa kappkostað við að virða þær fjárheimildir sem þeim hafa verið settar og þannig hafa yfirvöld litið svo á að skólinn þyrfti ekki meira. Sem dæmi sinnir rektor skólans ekki aðeins sínu starfi heldur einnig starfi fjármálastjóra sem og kerfisstjóra tölvumála. Það er búið að skera allt niður sem hægt er,“ segir Borgar Þór. Í yfirlýsingu frá skólanefnd MR segir að á undanförnum árum hafa framlög til skólans dregist mjög aftur úr framlögum til sambærilegra skóla og stóðu vonir til þess nú að hlutur nemenda MR yrði réttur. Sú tillaga sem fyrir liggur er öðru nær. „Í MR sækja um toppnemendur og það þarf mjög háa meðaleinkunn til að komast inn í skólann. Ár hvert þarf að synja mörgum inngöngu. Þá skilar skólinn af sér góðum raungreinanemendum í háskólanám. Þetta er allt vitnisburður um það að í skólanum er stundað eftirskóknarvert nám,“ segir Borgar og bætir við: „Aðbúnaður þessara nemenda er eiginlega ekki boðlegur lengur. Því gæðagóða skólastarfi sem MR hefur verið þekkt fyrir verður ekki haldið uppi að óbreyttu.“ Skólanefndin hefur boðað til neyðarfundar í hádeginu í dag með fulltrúum kennara, foreldra og nemenda, ásamt stjórnendum skólans, til að ræða þá alvarlegu stöðu sem komin er upp í skólanum. „Svo er vert að velta fyrir sér af hverju það er þannig að forsvarsmenn ríkisstofnana sem virða ekki fjárheimildir fá hækkuð fjárframlög á meðan þeim sem kappkosta að virða sínar fjárheimildir er sífellt refsað fyrir það,“ segir Borgar að lokum.Fréttablaðið og Vísir fjölluðu um fjárhagsstöðu Menntaskólans í Reykjavík í október.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira