Þetta tjáði Páll starfsfólki sínu á fámennum starfsmannafundi í dag sem hefði getað orðið fjölmennur en það er búið að reka alla.
Þrátt fyrir ágætis leik Benedicts Cumberbatch sem túlkar Helga Seljan, hápólitískt viðfangsefni og hinn verðlaunaða leikstjóra Bill Condon við stjórnvölinn gekk myndin ekki upp og að sögn útvarpstjóra ættu menn að skammast sín.

Stór nöfn hjá RÚV eru áberandi í myndinni en athygli vekur að Egill Helgason, sem lék sjálfan sig, hefur verið klipptur út úr myndinni. Það hefur nú tekið sinn tíma.
Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur ríkisrekna Facebook-síðu