Lostprophets söngvarinn Ian Watkins játar sekt í ógeðslegu barnaníðsmáli Orri Freyr Rúnarsson skrifar 26. nóvember 2013 17:05
Velski söngvarinn Ian Watkins, sem er hvað þekktastur fyrir söng í hljómsveitinni Lostprophets, hefur játað sekt sína vegna afar grófs kynferðisofbeldis gegn ungabörnum. Hinn 36 ára gamli Watkins hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu í málinu en í dag mætti hann fyrir dómara og játaði sekt sína í málinu. Watkins lýsti jafnframt yfir algjöru minnisleysi þegar að hann var spurður um myndbandsupptökur sem fundust af verknaðinum. Ákæran fjallar m.a. um óviðeigandi snertingu á 11 mánaða ungabarni og hvernig Watkins hvatti kvenkyns aðdáenda til að misnota barn sitt í spjalli í gegnum vefmyndavél. Watkins játaði einnig að hafa haft í fórum sínum afar gróft barnaklámsefni sem og efni sem sýndi dýraníð. Hann neitar þó enn sök fyrir að hafa nauðgað barninu þó svo að það hafi verið meiningin hjá honum. Ásamt Watkins eru tvær konur ákærðar í málinu, 21 árs og 24 ára en þær hafa ekki verið nafngreindar enn sem komið er. Búist er við að dómur í þessu viðbjóðslega máli verður kveðinn upp þann 18.des.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar stórslasaður eftir fagnaðarlæti Harmageddon Botnleðju verður aldrei lokað Harmageddon Black Sabbath á Íslandi um helgina Harmageddon Vala Grand trúlofuð á ný Harmageddon Harmageddon og Sannleikurinn.com sameinast Harmageddon Hljómsveitin Vök með útgáfutónleika í kvöld Harmageddon „Listamenn eru ekki að græða neitt“ Harmageddon „Ef þú hefur ekki stjórn á sjálfum þér þá getur þú ekki stjórnað stórum vinnustað“ Harmageddon Íslandsdeild Evrópusambandsins lögð niður Harmageddon Barði í Bang Gang í hljómsveit með Jean-Benoit úr Air Harmageddon