Eyjakonur eru komnar áfram í átta liða úrslit Coca-Cola bikars kvenna í handbolta eftir átta marka sigur á KA/Þór í Vestmannaeyjum í kvöld, 29-21.
KA/Þór var 18-17 yfir þegar tæplega átján mínútur voru til leiksloka en Eyjaliðið vann lokakafla leiksins 12-3 og tryggði sér sigur.
KA/Þór komst mest þremur mörkum yfir í fyrri hálfeik, var 12-10 yfir í hálfleik og með tveggja marka forskot, 17-15, þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum.
Vera Lopes skoraði 5 af 10 mörkum sínum á síðustu tuttugu mínútum leiksins en Ester Óskarsdóttir skoraði átta mörk fyrir ÍBV-liðið.
ÍBV- KA/Þór 29-21 (10-12)
Mörk ÍBV: Vera Lopes 10, Ester Óskarsdóttir 8, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Drífa Þorvaldsdóttir 3, Telma Silva Amado 3, Sandra Dís Sigurðardóttir 1.
Mörk KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 9, Ásdís Sigurðardóttir 6, Erla Hleiður Tryggvadóttir 2, Arna Kristín Einarsdóttir 2, Birta Fönn Sveinsdóttir 1, Stefanía Theódórsdóttir 1.
