Nóg að gera hjá Mammút á næstunni 19. desember 2013 17:46 Hljómsveitin Mammút
Það verður nóg að gera hjá hljómsveitinni Mammút á næstunni en Arnar Pétursson, gítarleikari hljómsveitarinnar, kíkti í smá spjall til Orra á X-inu í dag. Hljómsveitin gaf nýverið út plötuna Komdu til mín svarta systir en platan hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Þá var platan einnig valin plata ársins hjá Fréttablaðinu, hún er tilnefnd til sjö verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum auk þess að vera á Kraumslistanum. Arnar segir að hljómsveitin hafi alla tíð verið mjög sátt með plötuna og þessi góðu viðbrögð séu því tvöföld ánægja. Þar sem að platan er einnig á Kraumslistanum verður platan send til margra aðila í tónlistarbransanum erlendis og vonast Arnar til þess að hljómsveitin fái tækifæri erlendis og segir að það sé á stefnunni hjá Mammút. Hljómsveitin mun hafa í nógu að snúast á næstunni en hún er ein ef þeim sveitum sem koma fram á X-Mas 2013 auk þess að koma fram á Jólaplöggi Record Records sem fer fram á Gauknum og Harlem laugardaginn 21.desember. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Miðasala á X-Mas er í fullum gangi en kaupa má miða hér: https://midi.is/tonleikar/1/8035
Harmageddon Mest lesið Queen Tora Victoria Harmageddon Ísland í röngu tímabelti Harmageddon Hefur fengið múslima til þess að endurhugsa afstöðu sína Harmageddon Sannleikurinn: Fangar skulu knúsaðir oftar af starfsfólki fangelsanna Harmageddon Með rokkið í blóðinu Harmageddon Nýtt myndband með Benny Crespos Gang frumflutt á Vísi Harmageddon Söngvari Creed á ekki efni á mat Harmageddon Stefán Jón vill bæta lífskjör starfsmanna RÚV Harmageddon Púlsinn 19.ágúst 2014 Harmageddon Tveir látnir vegna eiturlyfsins Molly Harmageddon