Íslensku tónlistarverðlaunin 2013: Hjaltalín með flestar tilnefningar 10. desember 2013 14:15 Mynd/Vísir
Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna voru birtar í dag. Verðlaunin verða veitt í Eldborgarsal Hörpu föstudaginn 14. mars. Þá verður 20 ára afmæli þeirra fagnað og verður viðburðurinn því með glæsilegra sniði en áður.Popp og rokk Hjaltalín fékk flestar tilnefningar, alls átta talsins, í popp og rokk flokki. Mammút fékk sjö tilnefningar og Emilíana Torrini og John Grant fjórar. Íkorni og Drangar fylgja þar á eftir með þrjár tilnefningar hvor og einnig hljóta Lay Low og Baggalútur tvær tilnefningar auk þess sem Jóhanna Guðrún er tilnefnd sem söngkona ársins, m.a. fyrir flutning í laginu Mamma þarf að djamma með Baggalúti.Tilnefningar Hjaltalín: Hljómplata ársins, Söngkona ársins, Söngvari ársins, Tónlistarflytjandi ársins, Lag ársins, Lagahöfundur ársins, og Upptökustjóri ársins. Einnig hlýtur hljómplata Hjaltalín, Days of Grey, tilnefningu sem Hljómplata ársins í opnum flokki.Tilnefningar Mammút: Söngkona ársins, Textahöfundur ársins, Hljómplata ársins, Upptökustjóri ársins, Tónlistarflytjandi, Lag ársins og Lagahöfundur ársins. Tilnefningar Emilíönu Torrini: Hljómplata ársins, Söngkona ársins, Lag ársins og Lagahöfundur ársins.Tilnefningar John Grant: Hljómplata ársins, Söngvari ársins, Lag ársins, Lagahöfundur ársins.Djass og blús Í djass og blús flokki er Samúel Jón Samúelsson Big Band og Sunna Gunnlaugs með flestar tilnefningar eða fjórar hvor en fast á hæla þeirra fylgja K-Tríó, Tómas R. Einarsson og Sigurður Flosason með tvær tilnefningar.Tilnefningar SJS Big Band: Tónhöfundur ársins, Tónverk ársins, Tónlistarflytjandi ársins og Hljómplata ársins.Tilnefningar Sunnu Gunnlaugs: Tónhöfundur ársins, Tónverk ársins, Tónlistarflytjandi ársins og Hljómplata ársins.Tilnefningar K-Tríó: Tónhöfundur ársins og Hljómplata ársins.Tilnefningar Tómasar R. Einarssonar: Tónhöfundur árins og Tónverk ársins.Tilnefningar Sigurðar Flosasonar: Tónlistarflytjandi og Hljómplata ársins (Nightfall - Sigurður Flosason og Kjeld Lauritsen)Sígild og samtímatónlist Í flokki sígildrar- og samtímatónlistar er óperan Ragnheiður sem frumflutt var í Skálholti síðast liðið haust með flestar tilnefningar. Verkið er tilnefnt sem Tónverk ársins, Gunnar Þórðarson er tilnefndur sem Tónhöfundur ársins og að auki er Þóra Einarsdóttir tilnefnd sem Söngkona ársins fyrir frammistöðu sína í hlutverki Ragnheiðar og Eyjólfur Eyjólfsson er tilnefndur sem Söngvari ársins fyrir frammistöðu sína í hlutverki Daða Halldórssonar. Að lokum er frumflutningurinn á óperunni tilnefndur til Tónlistarviðburðar ársins. Hugi Guðmundsson hlýtur þrjár tilnefningar í ár en plata hans Djúpsins ró er tilnefnd sem Hljómplata ársins, verk hans Ice Age er tilnefnt sem Tónverk ársins og hann sjálfur sem Tónhöfundur ársins.Opinn flokkur Í ár er aftur tekið upp á því að verðlauna fyrir Hljómplötu ársins í opnum flokki (ýmis tónlist). Flokkurinn á að ná yfir þær hljómplötur sem með engu móti teljast geta fallið í einhvern hinna þriggja grunnflokkar (popp/rokk, djass/blús, sígild- og samtímatónlist). Í ár eru eftirfarandi hljómplötur tilnefndar í þeim flokki: Days of Grey eftir Hjaltalín, For Now I am Winter eftir Ólaf Arnalds og The Lighthouse Project með Amiina. Tilnefningar í flokkunum Bjartasta vonin, Plötuumslag ársins og Tónlistarmyndband ársins verða birtar eftir áramótin. Þá hefst einnig kjör á Vinsælasta flytjandanum en á verðlaununum sjálfum verður tilkynnt um það hver hlýtur Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna.TILNEFNINGAR TIL ÍTV 2013-Tilnefningarnar allar ásamt rökstuðningiTónhöfundur ársins – Jazz og blúsKristján Tryggvi Martinsson (K-tríó)Kristján er frjór tónhöfundur, sem víkur gjarnan frá hefðbundnum leiðum djasshöfunda og skipar húmorinn oft heiðurssess í verkum hans. Samúel Jón Samúelsson (SJS Big Band)Samúel skrifar einfaldar en kröftugar línur fyrir stórsveit sína og leitar oft fanga hjá horfnum stórsveitarmeisturum jafnt sem þeim er skína skærast í afrófönkheiminum.Sunna Gunnlaugsdóttir (Sunna Gunnlaugs)Sunna er næm á fallegar laglínur þótt hún skrifi ekki síður í hefðbundnum stíl eftir-bopp djassins.Tómas R. EinarssonTómas er meistari í að byggja upp tónverk sín og notar þá jafnt karabísk sem íslensk minni. Laglínurnar eru margar minnisstæðar og sumar hljóma eins og þær hafi alltaf verið til. Tónverk ársins – Jazz og blúsEthiopian af plötunni 4 hliðar – Samúel Jón SamúelssonHrynfast verk með margar víddir og þrátt fyrir fönkið má greina áhrif frá eldri meisturum stórsveitardjassins í raddsetningunni.Janúar af plötunni Bassanótt – Tómas R. EinarssonLjúfri laglínunni er gefinn þungi með bassaleik höfundar og það má skynja Ísland ekki síður en Kúbu í tónlistinni.Smiling Face af plötunni Distilled – Þorgrímur JónssonBallaða þar sem höfundurinn lýsir tilfinningum sínum í sterkum bassaleik í bland við mjúkan píanóleik.Strokkur af plötunni Gamla hverfið – Kristján Tryggvi MartinssonVerkið er expressjónísk lýsing á miklum umbrotum; stríðhljóma og kynngimagnað. Tónlistarflytjandi ársins – Jazz og blúsADHDKvartett sem leitar víða fanga í hryntónlist nútímans þó að oftast verði innhverf ballöðutúlkun ofaná. Hver einstaklingur býr yfir persónulegum stíl sem þjónar þó alltaf heildinni.Samúel Jón Samúelsson Big BandHljómsveit þar sem leikgleðin ríkir öllu öðru ofar, fönkaður hrynur og frábærir einleikarar hrífa jafnt dansglaða og þá sem vilja einbeita sér að hlustun.Sigurður FlosasonSigurður nálgast fullkomnun í altósaxófónleik sínum, sér í lagi í mjúktóna spuna. Hann er einn afkastamesti tónlistarmaður okkar og auk þess að leika á saxófóna og flautu er hann vaxandi hljómsveitarstjóri og aðalstjórnandi Stórsveitar Reykjavíkur. Tríó Sunnu GunnlaugsSérstaklega samspilað tríó þar sem einstaklingarnir þekkja hver annan firna vel, enda hafa þeir haldið fjölda tónleika víða um heim lengi vel.Hljómplata ársins - Jazz og blúsK-Tríó – Meatball EveningKröftugur en fágaður djass með skemmtilegum snúningum og útúrdúrum sem koma á óvart. Tónlistin gælir við hlustirnar á sama tíma og hún rótar í huganum og kallar á óvænt hughrif. Samúel Jón Samúelsson Big Band – 4 hliðarLifandi sönnun þess að heitustu hrynslaufur afróbítsins og tælandi tónar brasilísku sömbunnar eiga heima á norðurhjara. Jöklar bráðna, hitastig hækkar og gleðin tekur völdin þegar Samúel telur í. Sigurður Flosason og Kjeld Lauritsen – NightfallSigurður nálgast fullkomnun í altósaxófónleik sínum, sér í lagi í mjúktóna spuna. Hann er einn afkastamesti tónlistarmaður okkar og auk þess að leika á saxófóna og flautu er hann vaxandi hljómsveitarstjóri og aðalstjórnandi Stórsveitar Reykjavíkur. Sunna Gunnlaugs – DistilledSkapandi og hugmyndaríkur tónheimur Sunnu Gunnlaugs, Þorgríms Jónssonar og Scotts McLemore, ásamt þéttofnu samspili sem leyfir tónlistinni að anda á réttum stöðum, er meginstyrkur Distilled. Tónverk ársins - Sígild- og samtímatónlistLokalagið úr kvikmyndinni Í draumi sérhvers manns eftir Atla Ingólfsson.Frumflutt af Víkingi Heiðari Ólafssyni og Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Ilans Volkov á Tectonics-tónlistarhátíðinni 2013. Þetta er eins konar píanókonsert þar sem píanóið verður æ meira áberandi eftir því sem líður á verkið. Atli vísar í ljóð Steins Steinars: „Í draumi sérhvers manns er fall hans falið“ þar sem felst mikilvæg vísbending. Verkið er á köflum óreiðukennt, sem skapar áhugaverða spennu eftir því sem líður á verkið. Verkinu vindur fram og píanóparturinn verður æ flóknari og erfiðari. Þetta er óvenjulegt og skemmtilegt verk með kaldranalegan húmor. Gangverk englanna eftir Gunnar Andreas Kristinsson.Frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Ilans Volkovs á Myrkum músíkdögum 2013. Efniviðurinn er að hluta sóttur í íslenska vögguvísu, „Vaki englar vöggu hjá“, sem fléttast saman við ýmis vélræn ferli, nokkurs konar gangvirki. Þannig birtast fallegar andstæður í verkinu – hið mjúka og innhverfa andspænis hinu vélræna og harða. Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson. Frumflutt í Skálholti árið 2013. Þetta er saga Ragnheiðar Brynjólfsdóttur biskupsdóttur sem Gunnar færir í óperubúning. Hann notar tónmál sem er fremur hefðbundið og nýstárlegt í senn og nær að segja þessa erfiðu sögu á skýran og næman hátt og um leið búa til glæsilega óperu sem gaman verður að sjá á sviði. Höfuðskepnur eftir Hauk Tómasson. Frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórnJohn Storgårds, í nóvember árið 2012. Verkið er í fimm köflum og er samið með staðsetningu Hörpu í huga „þar sem frumöflin haf, land og norðangarrinn mæta menningunni.“ Hver kafli fyrir sig lýsir einni höfuðskepnu og Haukur sækir efniviðinn í jarðarpúlsinn, ískur íssins, ljós, loft og hinn endanlega skugga. Umfjöllunarefnið er á kosmískum skala og endurspeglast í fjölbreyttri úrvinnslu efnisins, þykkur tónvefur á móti fínlegum, háir tónar á móti dökkum, fastur rytmi á móti fljótandi. Í þessu stórbrotna verki má heyra mörg helstu einkenni tónsmíða Hauks. Ice Age eftir Huga Guðmundsson. Samið fyrir og frumflutt af Kammerkór danska útvarpsins í desember 2012. Verkið er samið fyrir kór og rafhljóð við ljóð Sigurbjargar Þrastardóttur. Dúlúðugt og seiðandi verk þar sem hefðbundnir hljómar og glissandó-strófur kórsins og rafhljóð unnin út frá þeim mynda heillandi vef. Eins og oft í verkum sínum tengir Hugi saman nútímann og vísanir hí fortíðina og hér vísar hann aftur í rómantíska skandinavíska kórahefð. Huga lætur vel að skrifa fyrir raddir og hér bætir hann en enn einni fjöður í þann glæsta hatt. Nostalgia eftir Pál Ragnar Pálsson. Verkið var frumflutt á Myrkum músíkdögum 2013 af Unu Sveinbjarnardóttur og Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Ilans Volkovs.Efniviður verksins er að miklu leyti sóttur í aðrar listgreinar, samnefnda kvikmynd Andreis Tarkovskis, goðsöguna af Sysifos, og verk franska rithöfundarins Alberts Camus um þá goðsögu – vísanir eru í horfinn tíma og söknuð eftir honum. Allt myndar þær saman eina sterka og áhrifaríka heild og nafn verksins endurspeglar fortíðarþrána enn frekar. Einstaklega áhrifamikið verk.Tónhöfundur ársins - Sígild- og samtímatónlistAtli IngólfssonFyrir verkið „Lokalagið úr kvikmyndinni Í draumi sérhvers manns“. Gunnar Andreas KristinssonFyrir „Gangvirki englanna“.Gunnar ÞórðarsonFyrir óperuna „Ragnheiði“.Hugi GuðmundssonFyrir „Ice Age“ Haukur TómassonFyrir „Höfuðskepnur“. Páll Ragnar PálssonFyrir fiðlukonsertinn „Nostalgia“.Tónlistarflytjandi ársins - Sígild- og samtímatónlistKammersveit ReykjavíkurKammersveit Reykjavíkur hélt eftirminnilega tónleika á Listahátíð í Reykjavík undir stjórn Petris Sakari, þar sem flutt voru valin verk eftir pólska tónskáldið Withold Lutoslawski í tilefni aldarafmælis hans. Leikur sveitarinnar var frammúrskarandi og túlkun sveitarinnar á framsæknum verkum Lutoslawskis undir stjórn Sakaris sannfærandi í alla staði.Nordic affectTónleikaár tónlistarhópsins Nordic affect einkenndist af mikilli fagmennsku og efnisskrár tónleika hópsins voru fjölbreyttar og vandlega samsettar af skýrri heildarsýn. Hópurinn hefur sérhæft sig í flutningi gamallar tónlistar sem og flutningi á samtímatónlist og hefur á þeim árum sem hann hefur starfað auðgað íslenska tónlistarflóru. Víkingur Heiðar ÓlafssonVíkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari kom fram á fjölmörgum tónleikum á árinu. M.a. frumflutti hann nýjan píanókonsert Atla Ingólfssonar með Sinóníuhljómsveit Ísland og átti hann mörg eftirminnileg augnablik á hátíðinni Reykjavik Midsumer Music. Auk þess lék hann með fjölmörgum íslenskum listamönnum í þáttaröðinni Útúrdúr sem hann ásamt Höllu Oddnýju Magnúsdóttur gerði fyrir RÚV.Anna Guðný GuðmundsdóttirAnna Guðný Guðmundsdóttir var mjög virk í tónlistarlífinu í ár og sýndi enn og aftur frammá að hún er einn af okkar fremstu tónlistarmönnum. Hún átti m.a. stórleik á hátíðinni Reykjavik Midsummer Music, á Listahátíð í Reykjavík í flutningi á verki Igors Stravinskys Petrushka og sem kammertónlistarflytjandi á Reykholtshátíð svo fátt eitt sé nefnt. Schola CantorumSchola Cantorum hélt tónleika á Kirkjulistahátíð ásamt 20 manna hátíðarsveit undir stjórn Harðar Áskelssonar sem helgaðir voru verkum eistneska tónskaldsins Arvo Pärt. Kórinn söng af miklu listfengi og náði vel að koma til skila því tímaleysi og tilbeiðslu sem helst einkennir verk Pärts.Hljómplata ársins - Sígild- og samtímatónlistDaníel Bjarnason - Over Light EarthÁ hljómdisknum Over Light Earth má finna tvö af nýrri verkum tónskáldsins og hljómsveitarstjórans Daníels Bjarnasonar, auk endurgerðrar á eldra verki. Frábær hljómdiskur þar sem afar vel er vandað til verka. Hugi Guðmundsson - Djúpsins róDjúpsins ró inniheldur kórverk, kammer- og einleiksverk eftir Huga Guðmundsson. Sérlega áhugaverður hljómdiskur og fjölbreytilegur. Emilía Rós Sigfúsdóttir og Ástríður Alda Sigurðardóttir - PortraitEmilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari og Ástríður Alda Sigurðardóttir bjóða upp á margar af helstu perlum verka fyrir flautu á píanó. Frábær flutningur og vel unninn diskur í alla staði. Vincent d´Indy - Orchestral Works 5 - Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Rumons GambaSamstarf Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Rumons Gamba elur af sér fimmta hljómdiskinn með verkum franska síð-rímantíkersins Vincent d´Indy. Frábær flutningur á áhugaverðri tónlist d´Indy og hljóðupptaka til fyrirmyndar. Þórður Magnússon - La PoesieÁ hljómdisknum La Poesie má finna fjögur nýlega kammertónverk eftir Þórð Magnússon. Verkin eru afar vel skrifuð og ekki er flutningurinn síðri. Frábær diskur. Söngkona ársins - Sígild- og samtímatónlistHallveig RúnarsdóttirHallveig Rúnarsdóttir hlýtur tilnefningu sem söngkona ársins fyrir frammistöðu sína í hlutverki Danielu í uppfærslu Íslensku Óperunnar á Carmen sem og fyrir flutning á sumartónleikum Skálholts 2013. Hanna Dóra SturludóttirHanna Dóra Sturludóttir hlýtur tilnefningu sem söngkona ársins fyrir frammistöðu sína í titilhlutverki Carmen í uppfærslu Íslensku Óperunnar sem og fyrir flutning á Wesendonk-ljóðum eftir Richard Wagner með Sinfóníuhljómsveit Íslands í vor. Þóra EinarsdóttirÞóra Einarsdóttir hlýtur tilnefningu sem söngkona ársins fyrir frammistöðu sína í hlutverki Ragnheiðar í samnefndri óperu eftir Gunnar Þórðarsson og einnig fyrir túlkun sína á Vier Letzte Lieder eftir Richard Strauss á tónlistarhátíðinni Reykjavik Midsommer Music. Söngvari ársins - Sígild- og samtímatónlistÁgúst ÓlafssonÁgúst Ólafsson hlýtur tilnefningu sem söngvari ársins fyrir þáttöku sína á listahátíð þar sem hann söng á þrennum tónleikum helstu ljóðasöngflokka Roberts Schumann, og fyrir frammistöðu í hlutverki Dancaire í uppfærslu Íslensku Óperunnar á Carmen. Bjarni Thor KristinssonBjarni Thor Kristinsson hlýtur tilnefningu sem söngvari ársins fyrir frammistöðu sína í hlutverki Zuninga í uppfærslu Íslensku Óperunnar á Carmen og fyrir söng sinn í verkum Wagners með Sinfóníuhljómsveit Íslands í vor. Eyjólfur EyjólfssonEyjólfur Eyjólfsson hlýtur tilnefningu sem söngvari ársins fyrir frammistöðu sína í hlutverki Daða Halldórssonar í óperunni Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarsson. Lagahöfundur ársins - popp og rokkDrangarFyrir samnefnda plötu þar sem frumleg notkun hljóðfæra í bland við fjölbreyttan söng og sterkar lagasmíðar nýtur sín vel. Emilíana TorriniFyrir Tookah; ljúfar lagasmíðar sem láta lítið yfir sér í byrjun en reynast þéttofnar og marglaga við nánari hlustun. HjaltalínFyrir Enter 4, þar sem hljómsveitin fer óhefðbundnar og margslungnar leiðir í lagasmíðum sínum. John GrantFyrir Pale Green Ghosts. Einlæg og öflug tónlist Johns Grant er hér samfléttuð raftónlist, sumsstaðar á ögrandi hátt, svo að úr verður einstök blanda. MammútFyrir Komdu til mín svarta systir. Sterkar lagasmíðar, skemmtileg uppbygging og útsetningar, þar sem kraftmikill söngurinn er studdur dyggilega af frumlegum hljóðfæraleik. Lag ársins - popp og rokkCrack In a Stone – HjaltalínMargbrotið lag sem grípur mann strax á fyrstu sekúndum: trommur, gítar og frábær bassalína; Högni og Sigríður syngja saman lagið, sem byggist upp í litla symfóníu með Bítlalegum hljóðheimi. Áhrifaríkt og fallegt. GMF – John GrantÞetta fallega, rólega lag stingur skemmtilega í stúf við kjarnyrtan textann; söngur Johns Grant er mjúkur og sterkur í senn og undirstrikar kaldhæðnina í textanum. Einfaldlega vel samið lag. Salt – MammútTaktföst byrjun, frumlegur millikafli, áleitinn söngur og vel útsettur undirleikur. Vel samið lag með þjóðlagalegri undiröldu sem hrífur mann með sér. Speed of Dark – Emilíana TorriniEitt af þessum lögum sem vekur athygli manns innanum öll hin lögin í útvarpinu; byrjar lágstemmt,en stöðugur takturinn og fallegur söngur Emilíönu sem eins og fléttast um lagið virkar næstum dáleiðandi. Hrífandi lag, bæði fyrir hug og dansgólf. Glaðasti hundur í heimi – Dr. Gunni og félagarEitt af ekki svo mörgum barnalögum sem grípa fullorðna jafn föstum tökum og börnin. Skemmtilegt lag og Friðrik Dór góður í hlutverki hundsins glaðasta. Mamma þarf að djamma – Baggalútur og Jóhanna GuðrúnVerulega grípandi og gott lag með drepfyndnum og snilldarvel sömdum texta, og punkturinn yfir i-ið er frábær söngur og túlkun Jóhönnu Guðrúnar. Tónlistarflytjandi ársins - popp og rokkÁhöfnin á HúnaFyrir einstaka tónleikasjóferð kringum landið og vel heppnaða bryggjutónleika á fjöldamörgum stöðum, þrátt fyrir misgott veðurfar. HjaltalínFyrir magnaða útgáfutónleika, áhrifaríka tónleika á Airwaves o.fl. MammútFyrir kraftmikinn og áhrífaríkan flutning á Airwaves, útgáfutónleikum o.fl. Of Monsters And MenFyrir frábæran flutning á tónleikum víðs vegar um heim, auk eftirminnilegra stórtónleika á Víðisstaðatúni sl. sumar. SkálmöldFyrir sterka sviðsframkomu, áhrifamikinn og öflugan flutning og frumleika. Söngvari ársins - popp og rokkEgill ÓlafssonEinstakur söngvari sem getur brugðið sér í ótal hlutverk. Hélt frábæra afmælistónleika á árinu og stofnaði til samstarfs við ungt tónlistarfólk með góðum árangri. Fjölhæfur og frjór í sinni tónlistarsköpun og flutningi og átti einnig topplag á árinu. Högni EgilssonHæfileikaríkur söngvari og listamaður með mikla útgeislun. Tilnefndur fyrir söng sinn með Hjaltalín og í öðrum verkefnum s.s. á leiksviði og víðar. John GrantGaf út plötuna Pale Green Ghosts og kom fram á fjölda tónleika innanlands- sem utan. Blæbrigðaríkur söngvari sem sýndi á árinu að hann er óhræddur við að reyna nýja hluti og efna til samstarfs við aðra tónlistarmenn í fjölbreyttum verkefnum. Pálmi GunnarssonEinn ástsælasti söngvari þjóðarinnar fór yfir magnaðan feril sinn með stórtónleikum á árinu og sendi frá sér þrefalda ferilsplötu með einu nýju lagi sem fór á toppinn. Jökull JúlíussonKraftmikill söngvari sem komst rækilega á kortið í ár með hljómsveit sinni Kaleo. Jafnvígur á bljúgar ballöður og rífandi rokkslagara. Eyþór IngiSigraði örugglega í Söngvakeppni sjónvarpsins, kom að fjölbreyttum verkefnum s.s. með Todmobile, Freddie Mercury heiðurstónleikum og gaf út plötu ásamt Atómskáldunum. Söngkona ársins - popp og rokkEmilíana TorriniFyrir tilfinningaríkan, en áreynslulausan og fallegan söng á plötunni Tookah. Jóhanna GuðrúnFjölhæf söngkona sem tekið hefur þátt í fjölbreyttum verkefnum. Fer á kostum með Baggalúti. Sigríður ThorlaciusFyrir frábæra túlkun og framkomu, einstaka söngrödd og flutning með Hjaltalín, á plötunni Jólakveðju og víðar. Katrína MogensenKraftmikil rödd með mikinn karakter, sterk sviðsframkoma og eftirtektarverður flutningur með hljómsveitinni Mammút. Lay LowEinlæg í flutningi sínum með mjúka en þó blæbrigðaríka rödd sem nýtur sín vel í einföldum útsetningum þar sem söngurinn stendur fremstur. Andrea GylfadóttirTöfrandi og fjölhæf söngkona sem leikur sér að því að flakka á milli tónlistarstefna. Hefur komið að margbreytilegum verkefnum á árinu með hljómsveit sinni Todmobile, Blúsmönnum og sem sólólistamaður. Hljómplata ársins - popp og rokkDrangar – DrangarLíflegar lagasmíðar, fjölbreyttur og frumlegur flutningur og skemmtilegir textar einkenna þessa fyrstu plötu Dranga. Tookah – Emilíana TorriniHeillandi plata sem vinnur á við hverja hlustun. Mjúkar, vel samdar melódíur og seiðandi söngur. Enter 4 – HjaltalínAthyglisverð plata þar sem fjölbreytnin er allsráðandi í óhefðbundnum og dramatískum popplagasmíðum. Íkorni – ÍkorniÁhugverð frumraun – heillandi, hugljúfar lagasmíðar og fallegur hljóðheimur. Pale Green Ghosts – John GrantSterk plata sem er í senn uppgjör við erfiða tíma og ný framtíðarsýn. Falleg rödd Johns Grant nýtur sín í fjölbreyttum lögum þar sem blandast hugljúfar lagasmíðar söngvaskáldsins og taktföst raftónlistin. Komdu til mín svarta systir – MammútOrkumikið verk sem einkennist af frumkrafti og ástríðu. Sterkir textar og athyglisverðar lagasmíðar fluttar af mikilli tilfinningu. Kveikur – SigurrósTónlistin á þessari sjöundu plötu Sigurrósar er sem magnað ferðalag um íslenska náttúra; eldur, ís, stormur, rafmagn...og svo loks komist í var. Kveikur er kröftugasta plata sveitarinnar í langan tíma, jafnvel sú kröftugasta frá upphafi. Þykkt, tilkomumikið, fljótandi hraunrokk.Textahöfundur ársinsBragi Valdimar SkúlasonFyrir texta við lög Baggalúts. Einstaklega hnyttinn og flinkur textahöfundur sem leikur sér með tungumálið.Bubbi MorthensSannkallaður sögumaður sem flytur okkur einlæga og sterka samfélagstexta úr nútíð og fortíð á plötunni Stormurinn.DrangarTilfinningaríkir og kjarnyrtir textar á plötunni Drangar. ÍkorniVönduð textagerð sem fer vel með ljúfum lagasmíðum á fyrstu plötu Íkorna. Katrína MogensenMunúðarfullir og kraftmiklir textar, sem einkennast af orku og ástríðu, á plötunni Komdu til mín Svarta systir með Mammút. Tónlistarviðburður ársinsEistnaflug 2013Einhvern tímann hefði Neskaupstaður þótt ólíklegur vettvangur fyrir árlega rokkhátíð, en þangað leggja æ fleiri leið sína, ekki síst erlendir gestir, sem fer sífellt fjölgandi á hátíðinni. Þetta er vel skipulögð rokkhátíð, glæsileg í alla staði og fer ávallt friðsamlega fram. Eistnaflug er gott dæmi um vel heppnaða tónlistarhátíð á landsbyggðinni.Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson – Ragnheiður, óperaFrumflutningur á óperunni Ragnheiður í Skálholti haustið 2013 líður þeim sem sáu seint úr minni. Gunnar Þórðarson færir texta Friðriks Erlingssonar á tóna á áhrifaríkan hátt og útkomuna er ekki hægt að kalla annað en stórvirki.Iceland Airwaves 2013Iceland Airwaves, sem haldin var í 15. sinn í ár, er ein fremsta tónlistarhátíð landsins. Iceland Airwaves státar af faglegri umgjörð og hefur náð þeim stalli að vera eins konar flaggskip íslenskra tónlistarhátíða. Hróður hátíðarinnar erlendis eykst með hverju árinu og er hún mikilvægur stökkpallur fyrir íslenskar hljómsveitir sem vilja leita út fyrir landsteinana.Ólafur Arnalds og Sinfóníuhljómsveit Íslands – For Now I am WinterLeiðir Ólafs Arnalds og Sinfóníuhljómsveitar Íslands lágu saman í fyrsta sinn á tónleikum Iceland Airwaves tónlistarhátíðarinnar í Elborgarsal Hörpu í lok nóvember sl.. Innhverf og einlæg tónlist Ólafs naut sín til fullnustu fyrir fullum sal áheyrenda í Eldborg og fegurðin í kyrrðinni ríkti ofar öllu. Pönk á Patró 2013Rokksveitin Skálmöld stjórnaði smiðjunni Pönk á Patró sem haldin var í fimmta sinn í Sjóræningjahúsinu. Börn og unglingar lærðu á hljóðfæri, nutu tónlistar á eigin forsendum og svöluðu rokkþörfinni í tónlistasmiðjum. Tónlist Skálmaldar og víkingatextar með fornum háttum í víkingastíl voru á kennsluskránni. Merkilegt grasrótarstarf á landsbyggðinni. Tónlistarhátíð unga fólksins – Kammer tónlistarhátíðMarkmið hátíðarinnar, sem í ár var haldin í sjötta sinn, er að skapa vettvang fyrir ungt tónlistarfólk til að tjá list sína á tónleikum og standa fyrir metnaðarfullum námskeiðum í tónlist og tónlistartengdum málefnum. Mikill fjöldi íslenskra sem erlendra tónlistarmanna hefur komið fram á hátíðinni og aragrúi ungs tónlistarfólks tekið þátt. Hátíðin er nú einn umfangsmesti árlegi viðburður fyrir klassíska tónlist á Íslandi.Upptökustjóri ársinsBjarni Rúnar Bjarnason – Portrait – Emilía Rós Sigfúsdóttir, Ástríður Alda Sigurðardóttir Fyrir upptökur á Portrait með Emilíu Rós Sigfúsdóttur og Ástríði Öldu Sigurðardóttur. Bjarni Rúnar hefur komið að óteljandi upptökum sem tónmeistari RÚV.. Á þessum hljómdiski sýnir hann og sannar að hann er í fremstu röð. Frábær upptakan fangar í senn vel flutta tónlist og skilar stemmningu tónlistarinnar sterkt til þeirra sem á hlýða. Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir (Lay Low)Fyrir upptökur á Talking About The Weather með Lay Low. Merkileg plata þar sem Lay Low skilar ótrúlega góðu verki. Hún vann plötuna nánast að öllu leyti ein og óstudd og leysti verkefnið af hendi á faglegan og eftirminnilegan hátt. Magnús Árni ÖderFyrir upptökur á Komdu til mín svarta systir með Mammút. Hljómsveitin er með mjög ákveðinn stíl sem Magnús Árni undirstrikar með frumleika sínum og smekkvísi. Stefán Örn GunnlaugssonFyrir upptökur á plötunni Íkorni með Íkorna. Heilsteyptur hljómur þar sem unnið er með heildarmynd á sama tíma og hvert lag fær viðeigandi meðhöndlun. Útkoman er þéttofinn hljóðvefur. Sveinn Helgi HalldórssonFyrir upptökur á Enter 4 með Hjaltalín. Einstaklega góður heildarhljómur þar sem hljóðfæraleik og öðrum hljóðum er smekklega skeytt saman og fær hlustandann til að gefa upptökunum sérstakan gaum. Valgeir SigurðssonFyrir upptökur á Over Light Earth sem inniheldur tónlist Daníels Bjarnasonar. Á plötunni eru þrjú tónverk eftir Daníel sem er nostrað við á öllum stigum. Hljóðvinnslan undirstrikar hvern tón og heldur jafnframt vel utanum heildarmyndina.Hljómplata ársins - Opinn flokkurDays of Grey – HjaltalínHeillandi verkefni sem varð að veruleika vegna áhuga bandarísks kvikmyndaleikstjóra á því að gera þögla mynd við tónlist eftir liðsmenn hljómsveitarinnar Hjaltalín. Niðurstaðan varð kvikmyndin Days of Grey og stemmningsrík tónlist sem líka stendur ágætlega ein og sér. For Now I am Winter – Ólafur ArnaldsÓlafur Arnalds heldur áfram að þróa tónsmíðar sínar sem sækja minni úr sígildum, nýgildum og rafrænum tónheimum. Útsetningar, vandaður hljóðfæraleikur og söngrödd skipa stóran sess og skapa draumkennt tónmál. The Lighthouse Project – AmiinaAfrakstur Vitaverkefnisins, hljómleikum sem Amiina hélt í vitum víða um landið árið 2009. Lokkandi og dulúðugur seiður leysist úr læðingi á þessari plötu sem geymir minninguna um sérstætt og fallegt tónlistarverkefni. TILNEFNINGAR OG VERÐLAUN SEM VERÐA KYNNT SEINNATilnefningar í flokkunum Bjartasta vonin, Plötuumslag ársins og Tónlistarmyndband ársins verða birtar eftir áramótin. Þá hefst einnig kjör á Vinsælasta flytjandanum en á verðlaununum sjálfum verður tilkynnt um það hver hlýtur Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Fréttir ársins 2013 Mest lesið Eiga nú glöðustu hunda í heimi Lífið Lést eftir að hafa fallið úr bíl á ferð Lífið Brúðkaup ársins 2024 Lífið Björn Ingi leikur í ofurhetjumynd Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Lífið Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Menning Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Króli trúlofaður Lífið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Live in a fishbowl: Stórvinir X-ins í Brain Police rifu þakið af húsinu Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Kunna ekki að slaka á og heyrðu í Svölu Björgvins Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi Sjá meira