Virðisaukandi ráðgjöf 9. janúar 2013 06:00 Ágúst Heimir Ólason, framkvæmdastjóri fjármálaráðgjafar Deloitte. Mynd/Valli "
Farsæl fjárhagsleg og rekstrarleg endurskipulagning hagkvæmra fyrirtækja er grundvallarforsenda þess að auka megi fjárfestingu í hagkerfinu. Aukin fjárfesting er um leið drifkraftur hagvaxtar og einkaneyslu og því afar mikilvæg fyrir lífskjör á Íslandi til framtíðar, að sögn Ágústs Heimis Ólafssonar, framkvæmdastjóra fjármálaráðgjafar Deloitte. "Fjármálaráðgjöf Deloitte veitir fjölbreytta þjónustu til stórra sem smárra fyrirtækja. Hún snýr meðal annars að fjárhagslegri og rekstrarlegri endurskipulagningu, samrunum og kaupum á fyrirtækjum, áreiðanleikakönnunum, virðismati, þjónustu við fjármálamarkaði og fasteignaráðgjöf.“ Endurskipulagning fyrirtækja Ágúst segir mörg fyrirtæki hafa komið of skuldsett úr fjárhagslegri endurskipulagningu fjármálastofnana og því er þörfin fyrir hagræðingu mikil, sérstaklega hjá minni og meðalstórum fyrirtækjum. "Þjónusta okkar felst meðal annars í að meta stöðu viðkomandi félaga út frá sjónarmiðum allra hagsmunaaðila, s.s. hluthafa, lánardrottna, viðskiptavina, starfsmanna og eftirlitsaðila á markaði.“ Hann segir niðurstöðu stöðumatsins notaða til að draga fram skynsamlegustu valkosti sem eru í boði til að tryggja hag þeirra aðila sem eiga hagsmuni sína að einhverju marki undir arðsömum og fjárhagslega sterkum rekstri. "Síðan vinnum við oft með hagsmunaaðilum að markvissri innleiðingu og eftirfylgni þeirra lausna sem valdar eru til að tryggja sem besta niðurstöðu.“ Samrunar, kaup- og söluaðstoð Deloitte býður viðskiptavinum alhliða lausnir og aðstoð við samruna, kaup og sölu fyrirtækja og rekstrareininga. "Þegar fyrirtæki vaxa með samruna við önnur félög þarf að fylgja slíkum viðskiptum eftir með öflugri breytingastjórnun og stefnumótun þannig að tryggt sé að stjórnendur hafi skýra og sameiginlega sýn á það hvernig hið sameinaða félag getur náð hámarksárangri.“ Áreiðanleikakannanir "Mikil eftirspurn er eftir óháðum rekstrarúttektum á starfsemi og "Red flag“ skoðunum. Á þessu ári munum við einnig bjóða félögum upp á sérstaka "heilsufarsúttekt“ óháð því að um eigendaskipti sé að ræða. Það er mjög verðmætt fyrir félög að fá slíka úttekt, m.a. vegna endurfjármögnunar lána á hagstæðari kjörum.“ Auk ofangreindra þjónustuþátta nefnir Ágúst virðisþjónustu Deloitte þar sem virði rekstrar eða rekstrareininga er metið. "Hvers konar virðismat þar sem beitt er mismunandi aðferðum til að áreiðanleiki niðurstaðna verði sem mestur er mjög stór þáttur í okkar þjónustu og verður áfram.“ Fjármálaráðgjöf Deloitte hefur auk þess undanfarin ár einbeitt sér að sérhæfðri fasteignaráðgjöf og ráðgjöf til fjármálafyrirtækja en Ágúst segir mikinn vöxt vera í þessum þjónustuþáttum. "Viðskiptaumhverfið er síbreytilegt og mikilvægt að bregðast fljótt við og laga þjónustu okkar að óskum viðskiptavina á hverjum tíma. Þannig eru þjónustulínur okkar stöðugt þróaðar til að mæta ýtrustu þörfum viðskiptalífsins fyrir hágæða þjónustu. Lykilatriði allrar okkar ráðgjafar er að veita viðskiptavinum okkar ávallt betri lausnir og bjóða ráðgjöf sem kostar aðeins brot af því virði sem hún skilar viðskiptavinum okkur.“ Fjármálaráðgjöf Deloitte hefur um árabil hefur verið leiðandi fyrirtæki á sviði fyrirtækjaráðgjafar hérlendis. Þar starfa sextán sérfræðingar sem allir hafa mikla reynslu af ráðgjafastörfum innanlands og erlendis ásamt því að flestir eru með mastersgráðu á sviði fjármála.
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira