Virkni, vellíðan og bætt heilsa 18. janúar 2013 07:00 Aðalbjörg Þorsteinsdóttir í Villimey.
Vörumerkið Villimey þekkja margir en frá árinu 2005 hafa ýmiss konar náttúruleg smyrsl með því nafni notið vinsælda. Nú er ný vara komin á markað frá Villimey en það er eplaedik með mismunandi virkni. Varan hefur verið í þróun frá árinu 2008 og er lífrænt vottuð af Vottunarstöðinni Túni. "Ég vil prófa vörurnar mínar vel og vandlega áður en ég set þær á markað og gef mér góðan tíma í ferlið,“ segir Aðalbjörg. Aðalbjörg Þorsteinsdóttir stendur að baki framleiðslunni. "Í eplaedikinu eru lifandi gerlar (acidophilus) sem eru taldir koma jafnvægi á þarmaflóruna og leiða til betri nýtingar á næringarefnum úr fæðunni. Það er einnig talið styrkjandi fyrir virkni líffæra eins og þvagblöðru, lifrar og nýrna ásamt því að vera gott við brjóstsviða og bólgum. Eplaedik er talið hreinsandi og stuðla að betri meltingu ásamt því að innhalda vítamín, steinefni og annað sem gerir líkamanum gott,“ segir Aðalbjörg.“ Þessar nýju vörur heita Berja Galdur, Hvannar Galdur og Birki Galdur og hafa hver sína virkni. "Berja Galdurinn er með aðalbláberjum sem eru stútfull af andoxunarefnum sem eru talin hægja á hrörnun líkamans, koma í veg fyrir hrukkumyndun og styrkja sjón. Birkið hefur verið notað sem lækningajurt í gegnum aldirnar en það er meðal annars talið hreinsandi, vatnslosandi og bólgueyðandi. Hvönnin er svo talin styrkja ónæmiskerfið og meltingarfærin, losa slím úr öndunarfærum og hefur verið notuð öldum saman sem vörn gegn ýmsum veirum.“ Hún segir eplaediksblöndurnar hafa gert sér og öðrum gott. "Ég var greind með magabólgur þegar ég var nítján ára gömul og hef prófað ýmislegt. Ef ég er undir miklu álagi á ég erfitt með að borða brasaðan mat og jafnvel soðinn fisk en eftir að ég fór að taka eplaedikið fyrir mat hurfu bólgurnar eins og dögg fyrir sólu. Aðalbjörg mælir með því að blanda 1-2 matskeiðum af edikinu út í glas af vatni og drekka 20-30 mínútum fyrir mat til að virkja meltingarensím og auka upptöku næringarefna. Hún segir sams konar vörur oft innihalda vínanda og því veigri sumir sér við þeim, sérstaklega óvirkir alkóhólistar. Eplaedikið dregur fram hollustuefnin í jurtunum með sams konar hætti og varan er alfarið laus við alkóhól. Þá verður blandan basísk í líkamanum sem margir telja eftirsóknarvert. Villimeyjarsmyrslin hennar Aðalbjargar eru af ýmsum toga og meðal annars hugsuð á sár, bólgur, verki, sveppasýkingar, húðútbrot, bleyjubruna og fleira. Þau hafa að hennar sögn reynst afar vel. "Í upphafi hugsaði ég þau aðeins fyrir mig og fjölskylduna en þegar virknin fór að spyrjast út var mér eiginlega ýtt út í að setja þau á markað. Þau eru, líkt og edikblöndurnar, unnin úr jurtum og án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna en við framleiðsluna alla hef ég það að markmiði að bæta heilsu og vellíðan fólks.“ En hvaðan kemur þessi grasaáhugi? "Þetta er í báðum ættum hjá mér og mér hefur verið sagt að ég hafi líka verið í þessu í fyrra lífi,“ segir Aðalbjörg og hlær. "Ég hef grúskað mikið í þessu og sótt fjölda námskeiða. Ég er ættuð frá Tálknafirði þar sem ég bý í dag og er mikið náttúrubarn. Ég þrífst best í hreinni náttúru Vestjarða,“ segir Aðalbjörg, sem áður stundaði smábátaútgerð á Tálknafirði og í Hafnarfirði, vann við bókhald og var útibússtjóri Sparisjóðsins á Tálknafirði. Edikblöndurnar fást í Fjarðarkaupum, Heilsuhúsinu og Lyfju. Hægt er að kynna sér Villimey nánar í meðfylgjandi veftímariti.
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira