Söngleikur Verslinga talinn klámfenginn sara@frettabladid.is skrifar 2. febrúar 2013 09:00 umdeild ádeila Myndband úr söngleiknum VÍ Will Rock You, sem Versló setur upp, er umdeilt. Björk Jakobsdóttir, leikstjóri verksins, kveðst montin af verkinu og segir það ádeilu á staðlaðar kynjaímyndir. Hér má sjá Teit Gissurarson í hlutverki Galileó Fígaró og Sigurbjörn Ara Sigurbjörnsson í hlutverki Rikka. „
Já, ég hef orðið vör við gagnrýnina. Þessi viðbrögð koma mér dálítið á óvart en ef ég set mig í spor þeirra sem ekki hafa séð leikritið í heild skil ég að myndbandið gæti virkað stuðandi á suma. En ég stend við bakið á verkinu,“ segir Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikstjóri söngleiksins VÍ Will Rock You, sem Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands setur upp í Austurbæ. Tónlistarmyndband úr sýningunni má nú finna á vefsíðunni Youtube og hefur það hlotið nokkra gagnrýni. Á samfélagsmiðlum er myndbandið meðal annars sagt klámfengið og ákveðin tímaskekkja. Björk er þessu ósammála og segir verkið ádeilu á íslenskt samfélag eins og það var fyrir hrun. „Þetta er ádeila á staðlaðar kynjaímyndir. Við byrjum í útskrift í Versló og síðan er farið yfir í Glitlandsbyr og þangað kemur ráðgjafateymið Killer Queens frá Cayman-eyjum sem eru hálfgerðar „slöts“ og ætla með brögðum að taka yfir bankann. En miðpunktur sögunnar er falleg ástarsaga tveggja drengja. Mér þykir voða leiðinlegt ef þetta hefur snert viðkvæmar taugar hjá einhverjum og ég hvet alla til að koma og sjá sýninguna og dæma svo. Að mínu mati er ekki verið að hlutgera konur í verkinu og sjálf er ég gallharður jafnréttissinni.“ Spurð hvort henni finnist dansatriðið hæfa menntaskólaleikriti segir Björk atriðið ekki stuða hana á nokkurn hátt. „Sonur minn er í sýningunni og myndbandinu og kannski er ég bara svona líbó, en ég þekki líka ádeiluna og húmorinn í verkinu. Mér finnst þau [krakkarnir] töff og flott og ég get ekki gert að því þó sumar stelpurnar vilji vera í diskóbuxum. Ég get alveg viðurkennt að þær eru full „sassy“ en það er ekkert sem kemur úr þessu myndbandi heldur myndböndum sem þau hafa verið að horfa á frá því þau voru börn,“ segir Björk og bætir við að lokum: „Ég er mjög montin af þessari leiksýningu og held ég sé að senda mjög falleg skilaboð til unglinga um að þau hafi frelsi til að elska þann sem þau vilja.“
Menning Mest lesið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Lífið samstarf Fleiri fréttir Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira