

Jafnaðarstjórn í fjögur ár: Úr skuldafjötrum
Sumarið 2007 námu heildarskuldir heimila 108 prósentum af landsframleiðslu. Í sínum hæstu hæðum árið 2009 námu skuldir heimilanna 135 prósentum af landsframleiðslunni. Nú bregður hins vegar svo við að skuldastaða þeirra er komin niður í 108 prósent á ný, eða sama hlutfall og 15 mánuðum fyrir bankahrunið. Lækkunin nemur yfir 300 milljörðum króna.
Lentum ekki í vítahringnum
Þetta er auðvitað jákvæð þróun. Ríkisstjórnin getur horft um öxl og séð að henni tókst samtímis að létta byrðar tekjulægstu heimilanna og koma þeim yfir erfiðasta hjallann. Engu að síður finna menn fyrir fjármálahruninu og fæstir gátu búist við því að sleppa við áhrif þessara hamfara af mannavöldum.
Hollt er að skoða þetta í samanburði við önnur lönd sem glímt hafa við hliðstæðan vanda undanfarin ár eins og gert er í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem birt var í apríl í fyrra. Þar var m.a. farið yfir viðbrögð stjórnvalda í nokkrum löndum við skuldavanda heimilanna og tekið fram að í öllum tilvikum hafi aðdragandinn einkennst af niðursveiflu og verulegri skuldasöfnun heimila. „Dæmið frá Íslandi sýnir hvernig fjölþætt nálgun getur létt skuldabyrði stórs hluta heimilanna og haldið aftur af vanskilum. Kveikjan að djörfum viðbrögðum stjórnvalda átti rætur í erfiðri skuldastöðu heimilanna og miklum félagslegum þrýstingi á stjórnvöld um að grípa til aðgerða.“
Fjölþættar ráðstafanir
Aðgerðirnar sem ríkisstjórnin greip til voru margvíslegar. Hún hefur nú varið um 100 milljörðum króna í vaxtabætur og barnabætur sem hafa þann eiginleika að rata þangað sem þörfin er mest. Fasteignalán hafa verið færð niður um 46 milljarða vegna 110 prósenta leiðarinnar. Þá hefur greiðsluaðlögun einstaklinga, sértæk skuldaaðlögun og greiðslujöfnun sömuleiðis hjálpað þúsundum einstaklinga.
Við erum ekki komin á leiðarenda. Enn er endurútreikningum gengislána ólokið og ekki hafa tekist samningar enn við lífeyrissjóðina um svonefnd lánsveð sem snerta drjúgan hóp fólks. Mér finnst einnig koma til greina að setja þak á verðtrygginguna ef um það getur náðst víðtæk sátt.
Lækkandi skuldir fyrirtækja
Skuldir fyrirtækja nema nú 170 prósentum af landsframleiðslunni og samanlagt nema því skuldir þeirra og heimilanna nærri þrefaldri árlegri landsframleiðslu eða 280 prósentum.
Samanlagt námu þessar skuldir liðlega fimmfaldri landsframleiðslu (510%) haustið 2008. Hér er því um ákaflega mikilsverðan viðsnúning að ræða enda viðurkennt að sligandi skuldir dragi úr eftirspurn og hagvexti. Í síðustu útgáfu Peningamála Seðlabanka Íslands er staðfest að skuldastaða heimila og fyrirtækja hafi lækkað um tvöfalda landsframleiðslu á einungis þremur árum. Afskriftir erlendra kröfuhafa gagnvart gömlu bönkunum eru ekki teknar með enda hefði lækkun skulda verið miklu meiri hefði verið tekið mið af þeim einnig.
Fyrir ári voru bankarnir með ráðandi stöðu í um fjórðungi 120 stærstu fyrirtækjanna í landinu. Sem kröfuhafar og lánardrottnar réðu þeir nærri 70 prósentum þeirra árið 2009. Samkvæmt skýrslu Samkeppniseftirlitsins fóru innan við tíu prósent fyrirtækjanna í gegnum gjaldþrot eða nauðasamninga. Þetta er athyglisvert í ljósi þess hve fjárhagur þeirra var illa leikinn eftir hrunið. Við vitum vel að hér á landi ríkir fákeppni og samkeppni er ábótavant í þágu neytenda.
Bankarnir urðu auðvitað að leggja mat á það hversu lífvænleg fyrirtækin væru þegar ákvarðanir voru teknar um líf þeirra, oft í óþökk keppinauta. Menn sýndu því skilning að þegar fyrirtæki voru lífvænleg og störf hundraða einstaklinga í húfi gátu miklar afskriftir verið réttlætanlegar. Þetta skilar sér þótt skuldsetning fyrirtækja sé almennt há enn þá.
Ríkissjóður einnig á réttri leið
Rétt eins og heimilum og fyrirtækjum er lífsnauðsynlegt að stöðva skuldasöfnun og lækka skuldir eftir föngum þarf ríkissjóður einnig að gera slíkt hið sama. Það hefur gengið vonum framar um leið og tekist hefur að verja velferðina og halda uppi atvinnustiginu og þrátt fyrir að ríkið taki nú minna til sín af þjóðarkökunni en fyrir hrun. Árið 2008 nam halli ríkissjóðs 216 milljörðum króna. Árið 2011 var hann kominn niður í 46 milljarða og 21 milljarð króna árið 2012.
Á fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir að hann verði innan við fjóra milljarða króna. Engin ríkisstjórn hefur náð viðlíka árangri í aðlögun ríkisfjármála á svo skömmum tíma. Vegna þessa árangurs fara skuldir ríkissjóðs nú loksins lækkandi sem hlutfall af landsframleiðslu þótt háar séu og vaxtagjöld mikil. Lyktir Icesave-málsins eru einnig mikið gleðiefni fyrir þjóðina í þessu sambandi. Það endurspeglar einnig batnandi hag að skuldatryggingaálag Íslands lækkar jafnt og þétt og er nú hið allra lægsta frá hruninu.
Skoðun

Sanngirni að brenna 230 milljarða króna?
Björn Leví Gunnarsson skrifar

Strandveiðar eru ekki sóun
Jón Þór Stefánsson skrifar

„Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“
Einar Ólafsson skrifar

SFS skuldar
Sigurjón Þórðarson skrifar

Hvar er hjálpin sem okkur var lofað?
Dagmar Valsdóttir skrifar

Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun
Svanur Guðmundsson skrifar

Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið
Elliði Vignisson skrifar

Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi
Matthías Arngrímsson skrifar

Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Aukið við sóun með einhverjum ráðum
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið
Arnar Laxdal skrifar

Vönduð vinnubrögð - alltaf!
Jóna Bjarnadóttir skrifar

Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna
Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar

Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið
Gína Júlía Waltersdóttir skrifar

Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng
Katrín Sigurðardóttir skrifar

Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið!
Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi skrifar

Linsa Lífsins
Matthildur Björnsdóttir skrifar

„Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu?
Viðar Halldórsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Netöryggi til framtíðar
Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar

Aftur á byrjunarreit
Hörður Arnarson skrifar

Norðurlandamet í fúski!
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám
Matthías Arngrímsson skrifar

Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja
Helen Ólafsdóttir skrifar

Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð!
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Hvert er markmið fulltrúalýðræðis?
Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar

Ég vona að þú gleymir mér ekki
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu?
Grétar Birgisson skrifar

Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það?
Davíð Bergmann skrifar