Helgarmaturinn - Léttsaltaðir þorskhnakkar með kartöflumús og tómatbasilikusósu 26. júlí 2013 14:00 Girnilegur og hollur réttur
Fyrir 2-42-4 þorskhnakkar (u.þ.b. 300 g hver), egg, salt, pipar, Lamb Islandia-krydd (Pottagaldrar), heilhveiti, mascarpone-ostur, kartöflur, möndlur, hakkaðir tómatar (í dós), skalottlaukur, hvítlaukur, fersk basilíka, basilíkugljái, parmaskinka, gufusoðið grænmeti eftir smekk (t.d. sykurbaunir).Byrjið á kartöflumúsinni. Kartöflur eru soðnar og stappaðar, einu eggi bætt út í og einnig mascarpone-osti úr öskju, ásamt salti, pipar og Lamb Islandia-kryddi. Saltfiski er velt vel upp úr heilhveiti með pipar í, eggi og síðast möndlum sem hafa verið malaðar vel í matvinnsluvél (eða með töfrasprota). Saltfiskurinn er steiktur á pönnu í smá stund og því næst settur í ofnskúffu þar sem parmaskinka er sett ofan á hvert stykki. Bakið í ofni og fylgist vel með á meðan. Sósa er löguð með því að mýkja þrjá skalottlauka og tvö meðalstór hvítlauksrif í potti með olíu. Einni dós af hökkuðum tómötum er bætt út í. Svo er pipar, salti og skvettu af basilgljáa bætt út í og látið malla í rúmar 10 mínútur. Þá er nauðsynlegt að bæta út í sósuna góðri lúku af saxaðri ferskri basilíku. Rétturinn er settur á hvern disk, fyrst kartöflumúsin, svo fiskbiti ofan á og sósan yfir allt. Það er líka gott að hafa eina tegund af gufusoðnu grænmeti til hliðar á diskinum, t.d. sykurbaunir sem er rétt búið að „svissa“ á pönnu í olíu og salt og pipar stráð yfir það.
Kartöflumús Saltfiskur Sjávarréttir Uppskriftir Mest lesið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Eva Marie Saint er látin Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið