

Hvernig eigum við að breyta?
Ný nefnd um stjórnarskrárbreytingar, með fulltrúum allra flokka, mun hefja störf fljótlega. Á vettvangi hennar mun þurfa að ná samstöðu um verklagið. Hér er mín tillaga:
Við eigum að nýta okkur hið nýja breytingaákvæði og svigrúmið sem það veitir til að áfangaskipta verkefninu. Verklagið við stjórnarskrárbreytingar hingað til hefur skilað litlu og það hefur stafað af því að allir vita að málum verður aðeins lokið við lok kjörtímabils. Nú eru komnir aðrir tímar og þess vegna hægt að vinna að stjórnarskrárumbótum allt kjörtímabilið og skila niðurstöðu í þremur áföngum: Þeim fyrsta sem verði lokið í vetur og verði lagður fyrir þjóðina samhliða sveitarstjórnarkosningum að vori, öðrum sem verði lokið í tíma fyrir forsetakosningar 2016 og þeim þriðja sem yrði lokið fyrir lok kjörtímabils.
Góð samstaða
Við alþingismenn verðum að sýna þjóðinni að við getum náð víðtækri samstöðu um ákveðnar breytingar fyrir næsta vor. Þar tel ég augljóst að við byrjum á ákvæði um auðlindir í almannaeign og þjóðaratkvæðagreiðslur. Um það ætti að geta orðið góð samstaða – þetta eru atriðin sem forsætisráðherra nefndi sem áhersluatriði í vinnu við stjórnarskrána í stefnuræðu sinni nú snemmsumars og þessi atriði voru meðal þeirra atriða sem þjóðin lýsti miklum stuðningi við í þjóðaratkvæðagreiðslunni síðasta haust.
Það hefur mikið starf farið fram við þróun ákvæðis um almannaeign á auðlindum, allt frá árinu 2000, og allir flokkar hafa á einhverjum tíma lagt fram drög að slíku ákvæði. Ef við horfum á þau atriði sem almenn samstaða er um ætti okkur að vera vandalaust að setja saman skýrt almannaeignarákvæði.
Með sama hætti er orðið afar brýnt að setja almennt ákvæði um rétt tiltekins hluta þjóðarinnar og minnihluta þingsins til að setja mál í þjóðaratkvæði. Málskotsréttur forseta er góður út af fyrir sig en hvorki þjóðin né minnihluti þingsins getur sætt sig við að eiga aðgang að þjóðaratkvæði undir mati eins manns, sem ekki byggir á efnislegum viðmiðum nema að litlu leyti. Við ákváðum að setja á fót á Íslandi lýðveldi en ekki menntað einveldi. Til þess að það virki þarf þjóðin og minnihluti þings að eiga sjálfstæðan málskotsrétt.
Skýr umgjörð
Við þurfum að hafa skýra umgjörð um rétt þjóðarinnar til að kalla fram þjóðaratkvæði. Fólk á rétt á því að um slíkt frumkvæði almennings gildi skýrar reglur og skýr umgjörð, sem veitir fólki raunverulega vissu fyrir því að ef tilteknu marki undirskrifta er náð muni þjóðaratkvæðagreiðsla fara fram.
Þróun mála í stjórnskipuninni undanfarin ár gerir það líka nauðsynlegt að þriðjungur þingmanna fái þann rétt að vísa málum til þjóðarinnar. Slíkt ákvæði er í dönsku stjórnarskránni og það hefur virkað þar svo vel að því hefur aldrei verið beitt.
Ástæðan er sú að ákvæðið hvetur stjórnvöld á hverjum tíma til að afla víðtækrar samstöðu um umdeild mál og það er nokkuð sem okkur hefur átakanlega skort undanfarin ár. Það gæti þannig orðið forsenda nýrra og betri vinnubragða í íslenskum stjórnmálum. Forseti Íslands hefur nú nýverið skilgreint málþóf sem einu leið minnihluta þings til að auka líkur á þjóðaratkvæðagreiðslu, að óbreyttri stjórnskipan. Ef leikreglunum verður ekki breytt stefnir því allt í það að málþófið muni áfram ríkja eitt.
Glæsilegt upphaf
Þótt við næðum ekki meiru í höfn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar að vori en ákvæði um almannaeign á auðlindum og nýjum ákvæðum um rétt tiltekins fjölda landsmanna og minnihluta þings til að vísa málum til þjóðaratkvæðis værum við að ná miklum árangri. Til viðbótar ættum við öll að sameinast um að leggja af Landsdóm og koma meðferð brota ráðamanna í sama farveg og brota annarra landsmanna. Það væri glæsilegt upphaf á lengri vegferð stjórnskipunarumbóta.
Skoðun

Börnin sem deyja á Gaza
Elín Pjetursdóttir skrifar

Brýr, sýkingar og börn
Jón Pétur Zimsen skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Hvað er lýðskóli eiginlega?
Margrét Gauja Magnúsdóttir skrifar

Búum til pláss fyrir framtíðina
Birna Þórarinsdóttir skrifar

Hættuleg ofnotkun svefnlyfja á Íslandi
Drífa Sigfúsdóttir skrifar

Kveikjum neistann um allt land
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Ætlar Ísland að fara sömu leið og Evrópa í útlendingamálum?
Kári Allansson skrifar

Samtökin 78 verðlauna sögufölsun
Böðvar Björnsson skrifar

Afstaða – á vaktinni í 20 ár
Arndís Vilhjálmsdóttir,Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Menntun sem mannréttindi – ekki forréttindi
París Anna Bergmann,Sigurður Kári Harðarson skrifar

Varað við embætti sérstaks saksóknara
Gestur Jónsson skrifar

Út af sporinu en ekki týnd að eilífu
María Helena Mazul skrifar

Meira að segja formaður Viðreisnar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Gaza sveltur til dauða - Tími bréfaskrifta er löngu liðinn
Magnús Magnússon,Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Steypuklumpablætið í borginni
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir skrifar

Kærum og beitum Ísrael viðskiptabanni!
Pétur Heimisson skrifar

Blæðandi vegir
Sigþór Sigurðsson skrifar

Fái einstaklingar sem eru hættulegir sjálfum sér ekki viðeigandi búsetuúrræði blasir við mikill harmleikur
Elínborg Björnsdóttir skrifar

Hroki og hleypidómar - syngur Jónas Sen?
Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar

Sveitarfélög gegna lykilhlutverki í vistvænni mannvirkjagerð
Guðrún Lilja Kristinsdóttir,Bergþóra Góa Kvaran skrifar

„Nýtt veiðigjald: sátt byggð á hagkvæmni“
Svanur Guðmundsson skrifar

Opinber áskorun til prófessorsins
Brynjar Karl Sigurðsson skrifar

Nærvera
Héðinn Unnsteinsson skrifar

Þegar Dagur lét mig hrasa á gangstéttarhellu
Björn Teitsson skrifar

Þessi jafnlaunavottun...
Sunna Arnardottir skrifar

Heilsuspillandi minnisleysi í boði Sjálfstæðisflokksins
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

#BLESSMETA – fyrsta grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Dáleiðsla er ímyndun ein
Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Þing í þágu kvenna
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar