Bókinni hefur verið líkt við Einar Áskel Ása Ottesen skrifar 21. ágúst 2013 09:00 Elsa Nielsen og Jóna Valborg Árnadóttir segja að vel hafi gengið að vinna saman. Fréttablaðið/Stefán „
Við erum báðar hugmyndaríkar og skapandi mæður og það hefur lengi verið draumur okkar beggja að gefa út barnabók,“ segir Elsa Nielsen, grafískur hönnuður, sem gaf nýverið út ævintýrabókina Brosbókina í samstarfi við vinkonu sína Jónu Valborgu Árnadóttur. „Jóna Valborg, sem stundar meistaranám í mannauðsstjórnun, bar hugmyndina undir mig og ég var ekki lengi að segja já.“ Þær stöllur sameina hér krafta sína í þessari nýstárlegu bók sem hefur verið líkt við barnabækurnar um Einar Áskel. Brosbókin er fyrsta höfundaverk þeirra og segir Elsa að það hafi verið frábært að vinna svona náið með vinkonu sinni. Jóna er höfundur texta en Elsa á heiðurinn af hönnun og myndskreytingum. Sagan er með ævintýralegum blæ og kemur sífellt á óvart. „Ég vildi fara sömu leið með teikningarnar. Myndirnar eru frekar grófar en á sama tíma fallegar og ég leyfði ímyndunaraflinu að leika lausum hala,“ segir Elsa. „Bókin er ekki síður skrifuð fyrir fullorðna en börn. Aðalpersóna bókarinnar, Sóla, er alltaf í góðu skapi og hefur þannig jákvæð áhrif á aðra. Einn daginn vaknar hún broslaus og úrill. Foreldrarnir rjúka til og vilja gera allt til að stelpan þeirra verði glöð á ný. Brosbókin er vel til þess fallin að ræða við börnin um tilfinningar, sínar eigin og annarra,“ segir Elsa að lokum glöð í bragði.Á menningarnótt 24. ágúst verður útgáfuveisla þar sem þær bjóða öllum að koma og fagna með sér útgáfu bókarinnar. Veislan verður í Borgarbókarsafninu Tryggvagötu frá kl 13.00-15.00
Menning Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Spila í fyrsta sinn á Þjóðhátíð Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Lada Sport okkar tíma Lífið samstarf Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Hlátrasköll og bongótrommur á forsýningu Alheimsdraumsins Lífið Avowed: Í senn hefðbundinn og framúrskarandi hlutverkaleikur Leikjavísir Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira