Menning

„Það gerist ekki neitt í þessu verki“

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Ragnar að störfum á málaraverkstæði Borgarleikhússins. Myndlist verksins er máluð á striga. Stærstu strigarnir eru um 160 fermetrar og byggir hver sena á nokkrum lögum af slíkum strigum.
Ragnar að störfum á málaraverkstæði Borgarleikhússins. Myndlist verksins er máluð á striga. Stærstu strigarnir eru um 160 fermetrar og byggir hver sena á nokkrum lögum af slíkum strigum. Mynd/Lilja Gunnarsdóttir
Mynd- og gjörningalistamaðurinn Ragnar Kjartansson ásamt tónlistarmanninum Kjartani Sveinssyni setja upp verkið Der Klang der Offenbarung des Göttlichen í Volksbühne-leikhúsinu í Berlín.

Verkið verður frumsýnt í febrúar á næsta ári.

„Þetta er um það bil sextíu mínútna verk,“ segir Ragnar um sýninguna.

„Það gerist ekki neitt í þessu verki,“ heldur hann áfram.

„Þetta er meira svona eins og hugleiðing um fegurðina og einveruna. Og kannski um leikhúsið og yfirborðskennd þess,“ útskýrir Ragnar.

Ragnar hefur ásamt samstarfsfólki sínu eytt sumrinu í að mála sviðsmyndir sem verða hluti af sýningunni. Þá semur Kjartan Sveinsson tónlist fyrir verkið. „Þetta verður eins konar ópera án orða,“ segir Ragnar.

Verkið er unnið fyrir Volksbühne leikhúsið í Berlín í samstarfi við Borgarleikhúsið í Reykjavik en verkið verður sett upp í Borgarleikhúsinu í tengslum við Listahátíð í Reykjavik í maí 2014.

Volksbühne-leikhúsið í Berlín hefur verið undir stjórn Franks Castorf síðan árið 1992. Leikhúsið hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir uppsetningar sínar. Húsið hefur einnig hlotið mikla athygli fjölmiðla og búið sér orðspor sem eitt framsæknasta og flottasta leikhús í Þýskalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×