Ljóð eru svo mikilvæg fyrir tungumálið Friðrika Benónýsdóttir skrifar 13. október 2013 15:00 Jón valdi og þýddi ljóð frá ýmsum heimshornum og þau eru nú komin út í bókinni Undir vernd stjarna. Fréttablaðið/Vilhelm
Út er komið ljóðasafnið Undir vernd stjarna, ljóð frá ýmsum heimshornum sem Jón Kalman Stefánsson valdi og þýddi. Höfundarnir eru átján, fimmtán karlar og þrjár konur, fæddir á bilinu 1891 til 1953. „Þetta eru ljóð sem ég hef hrifist af í gegnum tíðina,“ segir Jón. „Mér finnst ekkert mikilvægara fyrir tungumálið og bókmenntirnar en góðar ljóðaþýðingar og hef hrifist mjög af þýðingum manna eins og Jóhanns Hjálmarssonar og Gyrðis Elíassonar, þannig að ég ákvað að leggja mitt lóð á vogarskálarnar.“ Jón segist hafa byrjað að þýða eitt og eitt ljóð fyrir nokkrum árum en fyrir tveimur árum hafi hann farið að takast á við þau af meiri alvöru með útgáfu í huga. En er hann alveg hættur að yrkja sjálfur? „Já, það hef ég ekki gert í tuttugu ár,“ segir hann. „Sú gáfa var alveg tekin frá mér en ég næri ljóðskáldið í mér með þýðingunum.“
Menning Mest lesið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Fleiri fréttir Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira