Þetta er í raun og veru gjörningaröð sem við höfum verið að vinna í síðan 2011, með öðru,“ segir Bergþóra Snæbjörnsdóttir, skáld og annar höfunda gjörningaverksins The Days of the Child Prodigy Are Over. Hinn höfundurinn er Rakel McMahon myndlistarkona. „Okkur langaði að skapa eitthvað saman og fórum að spinna sögu. Ég samdi texta og Rakel teiknaði myndir og svo hentum við hugmyndunum á milli okkar. Þegar verkið fór að taka á sig mynd langaði okkur að setja það upp í þrívídd þannig að áhorfendur gætu gengið inn í þennan heim sem við vorum búnar að skapa,“ segir Bergþóra.

Betus hefur áður verið sýnt í Nýlistasafninu í Reykjavík, á Art in Translation í Norræna húsinu og Gruentaler9 í Berlín. Aðrir listamenn sem hafa komið að vinnslu verksins eru Saga Sigurðardóttir, dansari og danshöfundur, Eva Berger, búninga-og leikmyndahönnuður, Einar Tönsberg tónlistarmaður, Yair Vardi gjörningalistamaður og Anat Eisenberg, leikstjóri og danshöfundur.
Sýningin í Helsinki er hluti af Dimanche Rouge, alþjóðlegri gjörningahátíð sem fer fram í þremur löndum, Finnlandi, Frakklandi og Eistlandi, frá 17. til 20. október.