Leyfir fólki að gægjast í kistilinn Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. desember 2013 12:00 Guðrún Erla. Gjörningurinn hennar nefnist Hinsegin minningar um nokkra þeirra sem settust að í hjarta mér. Fréttablaðið/Stefán
Ljóðadagskráin í Iðu Zimsen bókakaffi hefur yfirskriftina Sodo Poesy. Þar lesa Auður Ava Ólafsdóttir, Ásdís Óladóttir og Eva Rún Snorradóttir úr verkum sínum og ljóð eftir Hörð Torfason verða túlkuð af Barða Guðmundssyni. Jafnframt opnar þar sýning í farandgalleríi Magnúsar Gestssonar, Gallerí Gesti, á verki myndlistarkonunnar G.ERLU sem hún nefnir Hinsegin minningar um nokkra þeirra sem settust að í hjarta mér. „Galleríið hans Magnúsar er lítil taska og ég geri hana að mínu rými. Leyfi fólki að gægjast ofan í kistilinn minn,“ segir G.ERLA sem heitir fullu nafni Guðrún Erla. Hún segir um gjörning að ræða sem kallist á við annan sem hún hafi verið með í Galleríi Suðurgötu 7 á aðfangadagskvöld 1978. „Í rauninni hélt ég jól þarna, var með nokkur gömul húsgögn og skreytti jólatré. Gjörningurinn fólst í því að ég tók umbúðir utan af hlutum sem höfðu tilfinningalegt gildi fyrir mig og skrifaði niður minningar sem tengdust þeim.“
Menning Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira