Brimborg frumsýnir Citroën C4 Picasso og Citroën Grand C4 Picasso Finnur Thorlacius skrifar 8. janúar 2014 11:15 Citroën C4 Picasso
Brimborg kynnir nýja Citroën C4 Picasso og Citroën Grand C4 Picasso á laugardaginn milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Citroën að Bíldshöfða 8. Báðir bílarnir hafa notið mikilla vinsælda í Evrópu. Citroën Grand C4 Picasso var valinn fjölskyldubíll ársins af Top Gear og Citroën C4 Picasso hefur verið tilnefndur í vali á bíl ársins í Evrópu en úrslit verða kynnt í mars. Báðir bílarnir hlutu jafnframt eftirsóttu viðurkenninguna Gullna stýrið í flokki fjölnotabíla. Bílarnir tilheyra flokki fjölskyldu- og fjölnotabíla (MPV). Citroën C4 Picasso er 5 manna en Citroën Grand C4 Picasso er 7 manna. Bílarnir eru mjög rúmgóðir og sérstök áhersla er lögð á gott aðgengi og þægilega umgengni. Bílarnir hafa ákveðna sérstöðu á markaðnum; Sætin í röðinni fyrir aftan framsætin eru í fullri stærð þannig að vel fer um alla farþega. Eins býður þetta upp á að 3 barnabílstjórar séu hlið við hlið. Farþegar sitja hátt og útsýnið er frábært þar sem framrúðan er óvenju há og rúður eru fleiri en í hefðbundnum bílum. Eyðslutölurnar eru mjög lágar en sjálfskiptur Citroën C4 Picasso með dísilvél eyðir einungis 3,8 l/100 km í blönduðum akstri. Verðið er einnig hagstætt en sjálfskiptur Citroën C4 Picasso er frá 3.990.000 kr. og Citroën Grand C4 Picasso er frá 4.390.000 kr.Brimborg hvetjur alla áhugasama til að líta við í sýningarsal Citroën að Bíldshöfða 8, milli kl. 12 og 16 á laugardaginn. Að sjálfsögðu verður boðið upp á reynsluakstur.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent