Doktor Gunni vekur athygli í Rolling Stone Gunnar Leó Pálsson skrifar 16. janúar 2014 19:00 Doktor Gunni fær góða dóma í pistli David Frickes sem er einn af ritstjórum Rolling Stone tímaritsins fréttablaðið/stefán
David Fricke, sem er einn af ritstjórum hins virta virta tímarits Rolling Stone, dásamaði fyrir skömmu bókinni Blue Eyed Pop eftir Gunnar Lárus Hjálmarsson, sem er líklega best þekktur sem Doktor Gunni.Um er að ræða pistil sem Fricke skrifaði á síðuna, þar sem hann gerir upp árið 2013. Þar fór hann fögrum orðum um bókina en í henni er íslensk tónlistarsaga gróflega rakin. Fricke kemur árlega til landsins til að vera viðstaddur Iceland Airwaves-hátíðina. „Ég hitti hann á síðustu Airwaves-hátið en þekki hann afskaplega lítið. Hann kom fyrst hingað til lands árið 1988 til að taka viðtal við Sykurmolanna,“ útskýrir Doktor Gunni. Í sama pistli talar Fricke um eftirminnileg augnablik á árinu sem hann upplifiði, en á meðal þeirra eru tónleikar Bruce Springsteens og The E Street Band á Ítalíu, hans síðasta viðtal við Lou Reed sem lést á árinu og tónleikar Brians Wilsons og Jeff Becks í Beacon-leikhúsinu í New York. Bókina skrifaði Doktorinn fyrir útlendinga, svo þeir gætu fræðst um okkar dásamlegu tónlistarmenningu- og sögu en hún kom einmitt út um það leyti þegar Fricke var staddur á landinu. „Ég er mjög ánægður með þetta, því það erfitt að koma svona bók á framfæri erlendis, því eins og er er hún eingöngu seld í búðum á Íslandi og í gegnum netið“ bætir Doktorinn við. Bókin er nokkurs konar samantekt úr bókinni Stuð vors lands eftir Doktor Gunna en hún kom út árið 2012.Pistil David Fricke má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Robert Wilson er látinn Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Lífið Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Einar og Milla eignuðust dreng Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira