Menning

Ásgeir Trausti semur titillag Furðulegs háttalags hunds um nótt

Af samlestri
Af samlestri
Fyrsti samlestur af verkinu Furðulegt háttalag hunds um nótt var í gær, en verkið er byggt á bókinni eftir Mark Haddon.  

Á samlestrinum var að finna ásamt leikurum verksins Magnús Geir, Borgarleikhússtjóra, yfirmenn allra deilda leikhússins, þýðanda verksins og dramatúrga svo eitthvað sé nefnt.

Listrænir stjórnendur sýningarinnar unnu mikið saman á gullaldarárum Hafnarfjarðarleikhússins en þeim bætist nú liðsauki í Lee Proud, danshöfundinum sem stýrði einstökum dansatriðum í Mary Poppins. 

Ásgeir Trausti semur tónlistina, en gat þó ekki verið viðstaddur samlesturinn þar sem hann er  staddur í Hollandi til að koma fram á EBBA-verðlaunahátíðinni þar í landi, og Hilmar Jónsson leikstýrir.

Verkið er frumsýnt í byrjun mars. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×