Hraðbrautarpöbb! Finnur Thorlacius skrifar 22. janúar 2014 09:03 Karl Bretaprins skálar í bjór, en skildi hann fá sér einn á M40 hraðbrautinni? Autoblog
Því hefur verið haldið fram að akstur bifreiða og áfengi fari ekki vel saman. Þessu virðast Bretar ekki alsendis sammála þar sem opnuð hefur verið hraðbrautarkrá við M40 hraðbrautina milli London og Birmingham. Hún verður opin frá 4 síðdegis og til 1 eftir miðnætti alla 7 daga vikunnar. Það er ekki nokkur leið að komast frá kránni án bíls og því einsýnt að þeir sem gæða sér á áfengum drykkjum þar eru um leið undir áhrifum á þessari hraðbraut. Að vonum er þessi opnun afar umdeild í Bretlandi um Umferðareftirlitið þar í landi er lítt hrifið af opnun þessarar kráar. Nógu slæmt er ástandið þar í landi hvað varðar áfengisdrykkju ökumanna. Banaslys þar sem ökumenn undir áhrifum eru gerendur eru alltof margir. Athygli vekur að kráin var opnuð þrátt fyrir að aðeins 12% svarenda í könnun þar sem spurt var um stuðning við opnun hennar voru henni fylgjandi. Í nýlegum þætti Top Gear var opnun kráarinnar til umfjöllunar og fannst þáttastjórnendum þetta afar umdeild ráðstöfun.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent