Shakira og Rihanna gamna sér í nýju myndbandi Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 1. febrúar 2014 21:23 Söngkonurnar liggja fáklæddar uppi í rúmi í myndbandinu.
Nýtt tónlistarmyndband söngkonunnar Shakiru hefur vakið athygli fyrir nokkuð djarfa senu þar sem hún lætur vel að söngkonunni Rihönnu. Lagið ber nafnið Can't Remember to Forget You og flytja söngkonurnar lagið saman. Æ algengara er orðið að popptónlistarmenn skreyti lög sín með djörfum tónlistarmyndböndum og muna líklega flestir eftir nýlegu myndbandi Miley Cyrus við lagið Wrecking Ball, þar sem söngkonan situr nakin, en þó í stígvélum, á risastórri járnkúlu á milli þess sem hún sleikir sleggju. Þá þóttu Beyoncé og eiginmaður hennar Jay Z nokkuð djörf í myndbandi lagsins Drunk in Love sem kom út á dögunum, sem og við flutning lagsins á nýafstaðinni Grammy-verðlaunahátíð. Sjá má myndband þeirra Shakiru og Rihönnu í spilaranum hér fyrir neðan.
Tónlist Mest lesið Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Lífið Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Lífið HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Lífið Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Lífið Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Lífið Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lífið Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Lífið Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart Lífið Fleiri fréttir Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira