Seldist á 4,6 milljarða Finnur Thorlacius skrifar 18. febrúar 2014 13:15 Ferrari Testa Rossa árgerð 1957. Autoblog
Enn eitt nýtt metið í sölu gamalla dýrgripa í formi bíla var slegið nýlega er þessi Ferrari 250 Testa Rossa bíll af árgerð 1957 seldist í Bretlandi. Þetta er þó ekki hæst upphæð sem greidd hefur verið fyrir bíl, en engu að síður sú hæsta í Bretlandi. Svo virðist sem gamlir söfnunarbílar verði aðeins dýrari og dýrari svo ekki er víst að þetta sé svo slæm fjárfesting hjá þeim vellauðuga einstaklingi sem tryggði sér bílinn með þessari geggjuðu upphæð. Fyrir þetta fé hefði hann geta keypt 28 nýja LaFerrari eða 128 F12 Berlinetta. Þessi Ferrari Testa Rossa bíll keppti í Le Mans þolaksturskeppninni árið 1957, en ökumanni hans tókst þó ekki að klára keppnina. Hann vann þó keppni í Buenos Aires í Argentínu og á Sebring brautinni. Aðeins voru smíðaðir 34.250 Testa Rossa bílar. Þessi bíll var í eigu Henry Ford Museum í 30 ár en var svo seldur árið 1997. Hann hefur ávallt fengið fullkomið viðhald og er eins og nýr, enda lítið ekinn. Ekki kemur fram hver er hinn nýi eigandi bílsins.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent