Benz G-Wagen með 800 hross frá Brabus Finnur Thorlacius skrifar 28. febrúar 2014 12:30 Mercedes Benz G-Landerwagen breyttur af Brabus. Jalopnik
Hinn ferkantaði og sterki G-Landerwagen frá Mercedes Benz er langt frá því dauður úr öllum æðum þó svo framtíð hans hafi verið óviss fyrir nokkrum misserum. Breytingafyrirtækið Brabus á nú þátt í því að lyfta honum á hærri stall með ótrúlegri úfærslu bílsins. Þessi útfærsla er hvorki meira né minna en 800 hestöfl og innréttingin með því fallegri sem sést hefur. Brabus segir að bíllinn eigi sér engin takmörk og geti nánast allt! Hvort sem það snýr að hraða, torfærugetu, akstureiginleikum eða lúxus standi hann flestum framar. Vélin í bílnum er 12 strokka, 800 hestöfl og togið er 1.047 Nm. Hann er 4,2 sekúndur í hundraðið og nær ótakmarkaður hraði hans er takmarkaður við 250 km/klst. Bíllinn hefur fengið vindskeiðar svo þessi múrsteinslagaði bíll kljúfi loftið aðeins betur. Innréttingin er líkt og í allra flottustu lúxuskerrum með tvo stóra upplýsingaskjái og iMac, svo engum leiðist í bílnum. Hljóðkerfið er líkt og í tónleikahöll og sætin eru stöguð í fallegt leður sem skilur eftir fallegt munstur á lærunum. Hjólhaf bílsins hefur verið breikkað um 12 sentimetra, en breidd milli öxla var ekki aukið. Ekki slorleg innrétting.JalopnikEkki væsir um aftursætisfarþega.Stæðilegur
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent