Mazda er að vonum með bás í bílasýningunni í Genf og þar sýna þeir nú þennan litla bíl sem ber nafnið Hazumi og er í B-stærðarflokki. Hann ber sannarlega svip af öðrum nýhönnuðum bílum Mazda með sína „Kodo“-línur og framendinn er nauðalíkur Mazda3.
Flestir vilja meina að þessi bíll sé í raun næsti Mazda2 bíll, þó hann beri allt annað nafn núna sem tilraunabíll. Hazumi er með 1,5 lítra Skyactive dísilvél sem á að vera einstaklega nýtin á eldsneytið, eins og aðra Skyactive vélar frá Mazda og menga minna en 90 g/km af koltvísýringi.
Hið nýja Mazda Connect upplýsingakerfi verður í bílnum og eins og hann stendur í básnum í Genf er hann með mjög fallega og nýtískulega innréttingu og þunn framsæti með Alcantara áklæði. Ekki er nú alveg víst að endanlegur bíll verði nákvæmlega þannig í útliti.
