Hvaða vesen er á honum félaga Pútín, forseta Rússlands, þessa dagana? Ólafur Ragnar er nýbúinn að ræða við hann og kappinn ætlar bara að ráðast inn í Úkraínu.
Það fór svo vel á með þeim um daginn. Maður fékk svona á tilfinninguna að þessir tveir sterku leiðtogar, Pútín og Ólafur, ættu í svipuðu vinasambandi og Kim Jong-un og Dennis Rodman.
Rússland hefur gefið Úkraínu frest til kl 03:00 í nótt. Ég vona að Ólafur Ragnar sé á leið út á flugvöll núna, fljúgi til Rússlands og tali Pútin til.
Ef einhver getur það þá er það okkar eigin Dalai Lama Norðursins. Það væri við hæfi að hann hitti Pútín í „höfuðborg Norðurslóða“ Pétursborg og tjónkaði við hann þar.
Ólafur hefur nú stöðvað margar hamfarirnar. Ef einhver getur komið í veg fyrir þetta stríð þá er það hann.
Sá eini sem getur komið í veg fyrir stríð núna er Ólafur Ragnar
