Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Valur 22-29 | Auðvelt hjá Valsmönnum Henry Birgir Gunnarsson í Austurbergi skrifar 13. mars 2014 03:32
Valur vann auðveldan sigur á vængbrotnu liði ÍR er liðin mættust í Austurbergi í kvöld. Valsliðið mikið sterkara og sigurinn afar sannfærandi. Liðin héldust í hendur í upphafi leiks en í stöðunni 6-6 þá stigu gestirnir á bensínið. Þeir lokuðu vörninni og refsuðu ítrekað með mörkum úr hraðaupphlaupum. Þeir komust í 6-10 og hefðu algjörlega keyrt yfir heimamenn ef Arnór Freyr Stefánsson hefði ekki varið eins og berserkur í markinu. Hann varði alls 15 skot í fyrri hálfleik og var með 50 prósent markvörslu. Þessi markvarsla hélt ÍR inn í leiknum og staðan í hálfleik, 12-15. Valsmenn spiluðu fínan varnarleik lengstum, sóknin óx og Ólafur gat rúllað öllum hópnum í fyrri hálfleik sem er nú ekki algeng sjón í handbolta. Eins og búast mátti við gat Arnór ekki haldið þessari ótrúlegu markvörslu gangandi í síðari hálfleik. Valsmenn skoruðu að vild og skelltu í lás á hinum enda vallarins. ÍR gat varla keypt mark á meðan Valsmenn röðuðu inn mörkum úr hraðaupphlaupum. Kristófer Fannar kom þá í markið hjá ÍR, fann sig vel og sá til þess að Valur skildi heimamenn ekki eftir algjörlega í rykinu. ÍR náði þó aldrei að koma sér almennilega inn í leikinn aftur og Valur sigldi heim þægilegum og sanngjörnum sigri. Valur vann auðveldan sigur á vængbrotnu liði ÍR er liðin mættust í Austurbergi í kvöld. Valsliðið mikið sterkara og sigurinn afar sannfærandi. Valur vann auðveldan sigur á vængbrotnu liði ÍR er liðin mættust í Austurbergi í kvöld. Valsliðið mikið sterkara og sigurinn afar sannfærandi. Valsmenn þurftu ekki að sýna neinn glansleik til þess að klára slakt lið ÍR í kvöld. Bæði vörn og sókn var upp og ofan allan leikinn. Þeir voru þó grimmari og fengu ellefu hraðaupphlaupsmörk og munar um minna. Geir þurfti oft að taka af skarið í sókninni og vantaði meira framlag frá fleiri útileikmönnum. Hlynur hefur oft varið meira en vörnin varði talsvert marga bolta fyrir hann. ÍR saknar bæði Björgvins Hólmgeirssonar og Ingimundar Ingimundarsonar. Það virðist liðið einfaldlega ekki ráða við. Sérstaklega í sókninni þar sem breiddin virðist ekki vera til staðar hjá liðinu. Guðni Már einn með meðvitund en aðrir útileikmenn buðu upp á nákvæmlega ekki neitt. Jón Heiðar skilaði sínu og markverðir liðsins björguðu því að liðið var ekki flengt á beran bossann í kvöld.Ólafur: Stundum stutt í kúkinn hjá okkur "Það er mjög erfitt að koma hingað og vinna. Við þurftum að hafa fyrir því. Menn voru stemmdir þegar blásið var til leiks," sagði Ólafur Stefánsson, þjálfari Vals, hógvær þrátt fyrir talsverða yfirburði síns liðs. "Það er að koma aðeins meiri dýnamík í okkar leik. Við erum ekki að spila á tveim liðum þar sem hvort lið fær 15 mínútur í senn. Við reynum að keyra upp hraðann og því verðum við að geta skipt mikið sem og við gerðum í dag." Vissulega mikið til í því hjá Ólafi sem rúllaði nánast öllum hópnum í fyrri hálfleik og svo örar voru skiptingarnar oft í leiknum að erfitt var að fylgjast með því hver væri inn á hverju sinni. "Það eru jákvæð teikn á lofti en þetta eru bara tvö stig þegar upp er staðið. Ég var ekki ánægður með hvernig við skjótum á markið en það er allt of mikið að láta verja 25 skot frá okkur. Það er neikvætt en að sama skapi jákvætt að vinna frekar sannfærandi. "Ég er ánægðastur með að menn hafi mætt í staðinn og komið hingað og keyrt af fullum krafti. Ég bið ekki um meira." Valsliðið virðist vera á stöðugri uppleið undir stjórn Ólafs og Ragnars Óskarssonar. Ólafur er nokkuð sáttur með hvar það er statt á þessum tímapunkti. "Við höfum samt brennt okkur oft á því í vetur að halda að liðið sé búið að smella. Við verðum því eiginlega alltaf að mæta á æfingar eins og við höfum tapað síðasta leik þó svo það hljómi leiðinlega. Það er stundum stutt í kúkinn hjá okkur og við erum að reyna að koma í veg fyrir það."Bjarki: Sóknarleikurinn var skelfilegur "Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Í sókninni vorum við einfaldlega ekki með. Sóknarleikurinn hjá okkur beið afhrof. Hann var skelfilegur," sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari ÍR, afar svekktur. Hann var ósáttur við fleiri hluti. "Við fáum ítrekað hraðaupphlaupsmörk á okkur eftir að hafa valið illa í sókninni. Það er ávísun á refsingu og okkur var heldur betur refsað í dag." Liðið saknar Björgvins og Ingimundar en er breiddin einfaldlega nógu mikil í þessu liði? "Við eigum að vera með þokkalega breidd en kannski vantar eitthvað meira upp á hjá mönnum. Það er samt ekkert hægt að fela sig á bak við meiðslin. Þetta var bara lélegt hjá okkur. "Við erum að berjast við að komast í úrslitakeppnina og menn gera ekkert fyrr en síðustu tíu mínúturnar. Markverðirnir voru frábærir og björguðu miklu. Vörnin stóð þokkalega á köflum. "Það er samt fyrst og fremst sóknarleikurinn sem klikkar í dag og svo þessi flenging í hraðaupphlaupum. Þetta var bara eins og æfingaleikur hjá Valsmönnum."
Olís-deild karla Mest lesið Allir leikmenn ÍR hættir á einu bretti Fótbolti Veittist að sautján ára mótherja sínum og hreytti í hann fúkyrðum Rafíþróttir Evrópa marði Ryder-bikarinn á dramatískan hátt Golf „Ef menn trúa því getum við farið ansi langt“ Fótbolti „Til að vera með í einhverri baráttu þurfum við að sýna betri frammistöðu“ Fótbolti Sjáðu endurkomusigur Arsenal og fyrsta mark Watkins Fótbolti „Strákarnir voru alltaf að stríða mér af því ég var ekki búinn að skora“ Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Valur 90-89 | Stjarnan náði að halda út og er meistari meistaranna Körfubolti „Strætó númer 15 stoppar beint fyrir utan KR-völlinn“ Fótbolti Dagskráin í dag: Fótboltinn í fyrirrúmi Sport Fleiri fréttir Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sjá meira